Hafa mikil áhrif á líf fárra Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. júlí 2014 10:15 Árni Helgason hefur undanfarna mánuði undirbúið samvinnu við héraðið Buikwe. Héraðið var valið af utanríkisráðuneytinu eftir mikla upplýsingaöflun svæðisskrifstofunnar um öll fiskveiðihéruð landsins. Búist er við að hafist verði handa við uppbyggingu á löndunaraðstöðu, salernum og vatnshönum á allra næstu mánuðum. mynd/gunnisal
Úganda er eitt af þremur samstarfsríkjum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og þar er megináhersla lögð á samvinnu við héruð sem byggja afkomu sína á fiskveiðum. Árni Helgason verkefnastjóri hóf starfið í Úganda árið 2000 og hefur stýrt verkefnum í landinu með stuttum hléum síðan. „Það hafa orðið miklar breytingar í Úganda á þessu tímabili. Höfuðborgin, Kampala, hefur þróast hratt með vaxandi millistétt og aukinni kaupgetu. En svo er það hinn heimurinn fyrir utan Kampala. Þar eru lífshættir enn mjög frumstæðir þar sem fólk býr án rafmagns, neysluhæfs vatns og það er ekkert raunverulegt mennta- eða heilbrigðiskerfi.“Kennum ekki fiskveiðar Fiskisamfélögin hafa það hvað verst varðandi aðstöðu og möguleika. Það er ein ástæða þess að ÞSSÍ velur að einblína á fiskveiðihéröð og einnig sú staðreynd að Ísland er líka fiskveiðiþjóð. Jafnvel þótt verklagið sé algjörlega ólíkt. „Við komum ekki og kennum þeim hvernig eigi að veiða fisk. Þau kunna það miklu betur en við í sínu umhverfi enda tæknistigið allt annað hér en á Íslandi. Hér er ekkert frystihús eða vinnslutæki, yfirleitt ekki einu sinni hreint vatn. Við aðstoðum við að gera áætlanir eftir óskum héraðsstjórnar, aðstoðum við að framkvæma þær og fjármagna að einhverju leyti. Þegar verkefnatími er liðinn á verkefnið að ganga af sjálfu sér án aðkomu okkar.“Úti í eyjum í Viktoríuvatni hefur ÞSSÍ unnið með eyjaskeggjum og bætt aðstöðu til fiskverkunar og hreinlætis til muna.mynd/gunnisalÞörfum þorpsbúa mætt Árni segir áherslu vera lagða á gæðamál, hreinlæti og neysluhæft vatn. Upprunalega var eingöngu sett upp hreinlætisaðstaða við löndunarstaði. Þá var byggð aðstaða fyrir meðferð á fiskinum í stað þess að verka hann á moldugri jörð, vatnsveita var byggð og hreinlætisaðstaða. Markmiðið með aukinni gæðastjórnun var að hækka útflutningsverð á fisknum. Því markmiði hefur verið náð og hefur þróunin verið sú síðustu ár að allt þorpið fær að njóta góðs af verkefninu. „Löndunarstaðurinn er girtur af og þorpsbúar horfðu löngunaraugum yfir girðinguna á hreint vatn og salernisaðstöðu. Við breyttum því verkefninu og mættum þörfum allra þorpsbúa með sambærilegri aðstöðu inn í þorpinu. Í raun hefur verkefnið fengið meiri samfélagslegan fókus.“ Náðu að útrýma kóleru Árangurinn hefur verið góður. Í einu þorpi í Norður-Úganda voru flest tilfelli kóleru í landinu. Þúsundir manna fengu kóleru vegna óhreins vatns og skorts á salernisaðstöðu og kostaði sjúkdómurinn töluvert marga lífið. Eftir að ÞSSÍ, í samvinnu við UNICEF, setti upp hreinlætisaðstöðu og vatnshana í þorpinu er kóleran á bak og burt. Ekki eitt tilfelli hefur komið upp á síðustu tveimur árum. Þannig getur ÞSSÍ haft mikil áhrif þótt stofnunin sé lítil en verkefnin í Úganda kosta um það bil 3-4 milljónir dollara á ári. Til samanburðar setja Norðurlöndin 40-60 milljónir dollara á hverju ári til þróunarsamvinnu í Úganda. „Við erum ekki með slagkraftinn til að takast á við stór verkefni þannig að við þurfum að vera afmörkuð og passa okkur að vera ekki með mikilmennskubrjálæði. Þannig náum við að hafa mikil áhrif á líf fárra í stað þess að þessi litla fjárhæð gufi upp, til dæmis með því að eyða henni allri í að kaupa bréfaklemmur fyrir heilbrigðisráðuneytið.“Með samvinnu við ÞSSÍ hefur tekist að hækka verð á fiskafurðum. Hér sjást konur með varning sinn til sölu á fiskmarkaði.mynd/gunnisal
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira