Keyptu öll fersk eistu á landinu Ugla Egilsdóttir skrifar 24. febrúar 2014 10:30 Hrútspungar eru yfirleitt súrsaðir á Íslandi, en Erlendur segir að þeir séu betri ferskir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „
Við erum búin að umturna húsnæðinu þar sem veitingastaðurinn Písa var áður,“ segir Erlendur Eiríksson, sem ætlar að stofna nýjan veitingastað í Lækjargötu í góðra vina hópi.„Við ætlum að opna næsta fimmtudag með allra vina- og guðshjálp,“ segir Erlendur. „Við keyptum upp öll fersk lambaeistu á Íslandi fyrir nýja staðinn. Meiningin er að bjóða upp á lambaeistun djúpsteikt. Það er svolítið þekktur réttur frá Bandaríkjunum, og heitir þar „Rocky Mountain Oyster“ en við ætlum að kalla réttinn Eyjafjallaostrur. Ég þurfti að berjast með kjafti og klóm fyrir því að fá hrútspungana. Þetta er yfirleitt sent úr landi,“ segir Erlendur. Erlendur og félagar hans eru að smíða nýjar innréttingar. „Uppi á háalofti hússins fundum við sendibréf frá 1904, gamlar flöskur og dósir og gamalt timbur. Úr þessu erum við að búa til innréttingar og skapa eins konar veiðikofastemningu,“ segir Erlendur, en staðurinn á að heita Veiðikofinn. „Það verður nart- og smakkstemning í matnum. Aðalþemað hjá okkur verður að taka safaríka aðalrétti og sunnudagssteikur og skella því í nýbakað brauð. Við bökum öll brauðin sjálf. Ég legg lífið að veði til að hafa glútenlaust brauð á boðstólum.“ Erlendur fullyrðir að maturinn verði á hæfilegu verði. „Verðið verður einhvers staðar í kringum tvöþúsundkallinn fyrir aðalrétt.“
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Furðubandið sem tryllti netið Lífið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Fleiri fréttir Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Sjá meira