Fréttir vikunnar á Vísi: Bjössi í World Class, barin grátandi kona og Caruso-slagurinn Jakob Bjarnar skrifar 21. desember 2014 11:00 Bjössi í World Class og Íris Hildur, sem greindi frá afdrifaríkum samskiptum þeirra fyrir tveimur árum. Ein af fréttum vikunnar.
Fjárlög urðu að lögum í vikunni og voru ýmsar eftirtektarverðar fréttir sem tengdust því. En, þó augu margra hafi verið á gjörðum ríkisstjórnarinnar, svo sem rithöfunda vegna hækkunar á virðisaukaskatti á bækur og svo þeirra sem láta sig hag Ríkisútvarpsins varða – en þar segja stjórnendur að við blasi niðurskurður, var það gamalt mál sem helst vakti athygli meðal lesenda Vísis. Hann Bjössi í World Class Fyrrverandi starfsmaður líkamsræktarstöðvarinnar World Class greindi frá því að fyrir um tveimur árum hafi eigandinn Björn Leifsson, eða Bjössi í World Class, sýnt sér fádæma ruddaskap, eða sagt henni að það gengi ekki að feit í afgreiðslunni. Margir urðu vitni að þessu og var niðurlægingin slík að stúlkan, sem heitir Hildur Íris Birgisdóttir, þurfti að leita sér sálfræðiaðstoðar til að vinna sig út úr áfallinu. Björn Leifsson hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um málið – þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vísis til að heyra hans hlið.Frásögn Bryndísar Heru af grátandi konu í Hagkaupum vakti mikla athygli.Barin, grátandi kona Þá vakti sagan um grátandi konu í Hagkaupum forvitni manna en Vísir greindi frá því að fjöldi manna hafi gengið fram hjá konu í nauðum. Eða allt þar til Bryndís Hera Gísladóttir átti leið hjá. Hún lánaði konunni síma sinn og gat hún þá hringt í dóttur sína sem kom til bjargar. Að sögn Bryndísar Heru hafði þá konan verið lamin illa af eiginmanni sínum. Vísi tókst ekki að fá það staðfest hjá lögreglu. Bryndís Hera hins vegar greindi frá því hvað konan hafði sagt og var það mikil rauna saga af samskiptum við hinn meinta ofbeldismann. Það er svo aukaflétta á þessari sögu, og allt annars eðlis, að Bryndís Hera hefur að undanförnu vakið athygli fyrir hlutverk í myndbandi Egils Einarssonar – en Vísir hefur greint frá því að það hefur farið um netið víða um heim og eru fjórar milljónir nú búnar að berja það augum.Málið með stólana í Raðhúsinu vakti mikla athygli í vikunni.Húsgögnin í ráðhúsinu Þá sagði Vísir frá vandræðum borgaryfirvalda en það má heita nokkuð neyðarlegt fyrir þá í ráðhúsinu að húsgögn þar eru eftirlíkingar og hefur hönnuðurinn farið fram á að þeim verði fargað. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir blóðugt að þurfa að henda á haugana ágætum húsgögnum en hann skilur hins vegar þau sjónarmið að standa þurfi vörð um höfundarétt. Fjöldi manna hefur sett sig í samband við borgarstjóra og boðist til að losa hann við sófana.Ólafur Arnalds lenti í því að þurfa að eiga við staðfasta tollverði.Tollaraunir Það þarf kannski ekki að koma á óvart, nú svo skömmu fyrir hátíðar þegar margir þurfa að eiga í viðskiptum við tollinn; varðandi sendingar til ástvina erlendis, að hremmingar tónlistarmannsins Ólafs Arnalds hafi vakið athygli. Vísir greindi frá raunum hans en honum hefur ekki tekist að leysa málverk úr tollinum sem voru gjöf frá vini hans. Það vantaði nefnilega reikninginn fyrir gjöfinni. Hann þarf að liggja fyrir en Ólafur Arnalds á í stökustu vandræðum með að verðleggja málverkið. Ber að miða við kostnað strigans og litanna eða hvað? Þessar raunir tónlistarmannsins lögðust þó ekki mjög þungt á hann, Ólafur Arnalds sagðist oft hafa lent í svipuðu og því reynslunnar smiður í því að eiga við tollara.Lögregla og starfsmenn fyrir framan Caruso. Vísir hefur fylgst með gangi mála.Caruso-slagurinn Vísir hefur í vikunni fylgst með átökum eiganda og eiganda rekstrar í hinum fornfræga veitingastað Caruso við Þingholtsstræti. Eigandinn José hefur verið með rekstur þar nú í 15 ár en nú vill eigandinn fá hann út. Og lét til skara skríða, fjórir vörpulegir menn mættu morgun einn, skiptu um skrá og læstu eigendur og starfsmenn úti. Sögur af þessum viðskiptum eru einhliða, því eigandinn Valdimar Jónsson vill ekki tjá sig um málið, en sögur eiganda og starfsfólks af viðskiptum við Valdimar eru dramatískar. José segir til dæmis að hann vilji nú hækka leiguna úr 1,4 milljónum uppí 3,5 á mánuði, hann vilji bola sér út, taka yfir reksturinn og meira að segja hafi hann gengið svo langt, eftir að hafa komist í rekstrarbækur að afboða pantanir auk þess sem hann hefur gert starfsfólki atvinnutilboð. Lögreglan hefur haft afskipti af málinu og fjöldi manna fylgst með væringunum enda staðsetning staðarins í hjarta borgarinnar. Fréttir af Caruso-slagnum vöktu mikla athygli og er ekki séð fyrir enda á því enn.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira