Gæslan kölluð aftur fyrir allsherjarnefnd Alþingis Heimir Már Pétursson skrifar 3. nóvember 2014 12:45 Fulltrúar Landhelgisgæslunnar koma öðru sinni fyrir allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis á morgun vegna innflutnings á hríðskotabyssum sem ekki hafa verið tollafgreiddar. vísir
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðir fyrir allsherjar- og menntamálanefnd öðru sinni á morgun til að skýra með hvaða hætti var staðið að innflutningi hríðskotabyssa til landsins frá Noregi. En í ljós hefur komið að Gæslan sniðgekk algerlega Tollinn við innflutninginn á vopnunum. Tollurinn innsiglaði geymslur Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli í þarsíðustu viku þar sem á þriðja hundrað hríðskotabyssur frá norska hernum eru geymdar, en þær hafa enn ekki fengið tollafgreiðslu eins og við greindum frá í fréttum okkar á Stöð 2 á laugardag.Er það í sjálfu sér ekki alvarlegt mál þegar löggæslustofnun á í hlut? „Jú, það má auðvitað segja það. Við í nefndinni hjá mér, allsherjar- og menntamálanefnd, höfum verið að höfum verið að kalla fram upplýsingar um þetta mál á undanförnum vikum. Við erum með fund á morgun þar sem við höfum þá kallað Landhelgisgæsluna til okkar að nýju til að fara yfir þennan þátt málsins. Við þurfum auðvitað að fá upplýsingar beint frá þeim sem getur gefið okkur þær,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Hún segir að best hefði verið að fá allar staðreyndir málsins fram strax og málið kom upp. Gæslan eins og aðrar stofnanir verði að fara að lögum. „Jú, ég myndi halda að það væri reglan sem ætti að vera en við fáum skýringar á þessu á morgun,“ segir Unnur Brá.Þannig að nefndin og þú sem formaður telijið fulla þörf á að skoða þetta mál? „Já, við höfum verið að skoða þetta mál og viljum fá fram allar hliðar þess þannig að við attum okkur á heildarmyndinni,“ segir Unnur Brá. Þá kann málið að koma fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem Ögmundur Jónasson fyrrverandi innanríkisráðherra er formaður, sem minnir á að málið verði tekið fyrir í allsherjar- og menntamálanefnd á morgun. „Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis mun bíða átekta þar til þeirri skoðun er lokið. En ég er sammála því að það er nauðsynlegt að fá allar staðreyndir þessa máls á borðið og ákveða síðan hvað menn geri í framhaldinu,“ segir ögmundur. En að sjálfsögðu sé mikilvægt að Landhelgisgæslan eins og aðrar stofnanir fari að lögum. „Að sjálfsögðu er það svo. En fyrsta skrefið er að fá á óyggjandi hátt atburðarrásina, framvinduna, ákvörðunartöku í málinu. Fá með öðrum orðum allar staðreyndir upp á borðið,“ segir Ögmundur Jónasson.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira