Misnotaði þroskahamlaða konu sem vildi passa börn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. desember 2014 14:55 Jóhannes Óli stofnaði árið 2012 eineltissamtökin Sólskinsbörn. Yfirlýst markmið samtakanna var að berjast gegn einelti
Jóhannes Óli Ragnarsson, 32 ára karlmaður sem á dögunum var dæmdur í tíu ára fangelsi kynferðisbrot gegn tveimur ungum drengjum og þroskahamlaðri konu á þrítugsaldri, bauð konunni heim til sín á þeim forsendum að henni stæði til boða starf við barnapössun. Konan hafði sett auglýsingu í fjölmiðla síðla árs 2013 þar sem hún bauð fram krafta sína við barnapössun. Jóhannes bauð henni í kjölfarið í heimsókn til sín þar sem hann þvingaði hana til kynferðislega athafna.Vísir fjallaði um dóminn þegar hann féll þann 18. desember en hann er með þeim þyngstu sem fallið hafa í kynferðisbrotamálum hér á landi. Dómurinn hefur nú verið birtur á heimasíðu Héraðsdóms Norðurlands Eystra en hafði þangað til ekki verið aðgengilegur fjölmiðlum. Fyrir lágu upplýsingar um brot mannsins gegn drengjunum tveimur sem komið höfðu fram í greinargerð lögreglu vegna endurtekinnar kröfu um gæsluvarðhald sem birtar eru á vef Hæstaréttar.Ótrúverðugur framburður Jóhannes Óli sagðist fyrir dómi hafa hringt í ungu konuna til að kynnast henni. Hún hefði minnst á áhuga sinn til að passa börn í símtalinu en hann hefði ekki haft neina þörf fyrir slíka þjónustu. Hann sagðist þó hafa séð umrædda auglýsingu. Hann neitaði því að hafa viðhaft kynferðisleg atlot en þau hefðu þó kysst og viðhaft strokur utan klæða. Konan hélt því hins vegar fram að hann hefði boðið henni heim til sín til að passa barn. Bróðir konunnar skutlaði henni þangað og sagði hana hafa verið afar spennta. Það hefði verið draumur hennar að starfa við barnapössun. Hún hafi verið í íbúð mannsins í klukkustund þar sem hann hefði meðal annars sagt þurfa að refsa henni, hefði rassskellt hana og neytt til munnmaka. Að mati dómsins var framburður konunnar, sem hafi þroska á við ungt barn, einlægur og trúverðugur. Framburður Jóhannesar hafi hins vegar verið ótrúverðugur „og þar á meðal að honum hafi ekki í ljósi símaviðræðna og síðari samskipta getað dulist að brotaþoli ætti við verulega greindarskerðingu að stríða.“ Var Jóhannes dæmdur fyrir að nýta sér andlega fötlun konunnar. Varðar það brot á 2. málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga þar sem segir að það teljist til nauðgunar að notfæra sér „geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök.“Sex milljónir í bætur Jóhannes Óli var dæmdur til að greiða konunni eina milljón krónur í miskabætur en farið var fram á 2,5 milljónir króna í bætur. Þá var hann dæmdur til að greiða drengjunum tveimur 2,5 milljón króna í bætur en forráðamenn drengjanna fóru fram á fjórar milljónir króna.Dómurinn í heild sinni
Tengdar fréttir Dæmdur í tíu ára fangelsi: Braut kynferðislega á átta ára drengjum og þroskahamlaðri konu Jóhannes Óli Ragnarsson, 32 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra. 18. desember 2014 15:22 Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira
Dæmdur í tíu ára fangelsi: Braut kynferðislega á átta ára drengjum og þroskahamlaðri konu Jóhannes Óli Ragnarsson, 32 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra. 18. desember 2014 15:22