Á annað hundrað erlendra útsendara Íslands í heimsókn Heimir Már Pétursson skrifar 2. október 2014 20:00
Hundrað og þrjátíu ræðismenn Íslands frá 57 löndum funda nú í Reykjavík til að kynna sér land og þjóð. Þetta er fyrsti fundur af þessu tagi frá því fyrir hrun efnahagslífsins. Ræðismennnirnir gáfu utanríkisráðuneytinu borð sem smíðað er úr viðarbútum frá öllum löndunum sem þeir starfa í. Það er ómetanlegt fyrir fámennt ríki eins og Ísland að eiga 130 fulltrúa víðs vegar um heim í sjálfboðavinnu fyrir Ísland. En þeir aðstoða bæði íslensk fyrirtæki og ekki hvað síst íslenska ferðamenn hvort sem þeir lenda í vandamálum eða ekki. Ræðismenirnir gáfu utanríkisráðuneytinu borð sem smíðar er úr viði frá öllum þeim löndum sem Ísland hefur ræðismenn en bútarnir koma m.a. úr sumarbústað sem rifinn var á Borgundarhólmi og bryggju í Bergen. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra þakkaði hinum erlendu ræðismönnum fyrir gjöfina og þjóustu þeirra við íslensku þjóðina. „Kosningar utan kjörfundar, vegabréfsmál, samskipti við fjölmiðla og neyðaráætlanir ýmis konar eru allt mál sem koma upp í utanríkisþjónustunni. Og þið ræðismennirnir veitið ómissandi þjónustu í þessum efnum til Íslendinga um allan heim,“ sagði Gunnar Bragi. Ræðismenn Íslands eru yfirleitt vel tengdir í heimalandi sínu, eins og Elizabeth Sy aðalræðismaður Íslands á Filipseyjum sem er úr fjölskyldu sem á banka, stórar verslunarmiðstöðvar og hótel um allar Filipseyjar. Löndin eiga margt sameiginlegt eins og eldfjöll, jarðhita og blómlegan sjávarútveg. Sy segir landa hennar ekki vita mikið um Ísland. „Nema að þetta hljóti að vera land íss en ég reyni að fræða þá. Filipseyingar huga lítið að viðskiptum við Ísland enn sem komið er. Ég hef hins vegar verið að reyna að upplýsa þá um jarðhitaþekkingu Íslendinga og fiskveiðitækni. Þannig að Filipseyingar eru smátt og smátt að læra meira um möguleikana á samskiptum og viðskiptum og möguleikarnir eru miklir,“ segir Sy. Innanríkisráðherra og fjármálaráðherra fluttu erindi og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra settist við píanóið í Eldborg og lék undir hjá sópransöngkonunni Þóru Einarsdóttur, eins og sjá má í sjónvarpsfréttinni hér fyrir ofan.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira