Heilsuræktin sneri getu á betri veg Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 25. september 2014 08:45 Í líkamsræktinni. Janus Guðlaugsson íþróttafræðingur leiðbeinir Sigurrós Ottósdóttur og Jóni Erni Bogasyni í tækjunum. VÍSIR/GVA
Tæplega tíu af um 100 manna hópi aldraðra sem þátt tóku í rannsókn Janusar Guðlaugssonar íþróttafræðings á áhrifum líkamsræktar á heilsu aldraðra höfðu komið í líkamsræktarstöð eða kynnst slíku æfingafyrirkomulagi þegar rannsóknin hófst. Eftir sex mánaða reglulega líkamsrækt hafði elsti aldurshópurinn, þar sem meðalaldurinn var 84 ár, náð meðalaútkomu yngsta hópsins, það er rúmlega 70 ára, í styrk, hreyfigetu og þoli. „Ef maður getur farið og æft og fundið sig 10 til 15 árum yngri en maður er er það þess virði að eyða tímanum í þetta,“ segir Janus sem í þessari viku varði doktorsritgerð sína um niðurstöður rannsóknarinnar. Ályktun Janusar er að fjölþætt heilsurækt og ráðgjöf um næringu geti hægt á öldrunarferlinu, leikið lykilhlutverk í forvörnum gegn sarcopeniu (hægfara vöðvarýrnun og dvínandi hreyfigeta) og haft jákvæð áhrif á áhættuþætti menningarsjúkdóma á borð við offitu, sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma. Hann segir hins vegar ekki nóg fyrir afa og ömmu að fara í gönguferðir. „Það er ekki sama hvernig æft er. Þjálfunin þarf að vera fjölbreytt með áherslu á þol og sérstaka áherslu á styrk. Staðreyndin er sú að fólk þarf að komast í styrktartæki til að auka vöðvamassann og fá góðar leiðbeiningar. Það er hægt að bæta á sig vöðvamassa þótt menn séu orðnir þetta gamlir.“ Þátttakendur í rannsókninni, sem gerð var frá miðju ári 2008 til loka ársins 2010, voru 71 til 90 ára. Mælingar í upphafi rannsóknar sýndu að meirihluti, eða 60 prósent þátttakenda, hreyfði sig að jafnaði í 15 mínútur eða skemur í hvert skipti sem kom að hreyfingu. Það er nokkuð undir ráðleggingum alþjóðlegra heilbrigðisstofnana, að því er Janus greinir frá. Niðurstöður mælinga á hreyfigetu þátttakenda að lokinni þjálfun sýndu verulega framför en líkamsræktin var í formi daglegrar þolþjálfunar og styrktarþjálfunar tvisvar í viku. Meirihluti þátttakenda hélt áfram að ganga að lokinni rannsókninni og helmingur hélt áfram að styrkja sig. Janus segir það hafa komið á óvart hversu mikið hreyfigeta, þol og styrkur þátttakenda jókst. „Það kom jafnframt á óvart að þau héldu hreyfigetunni eftir að við vorum hætt að þjálfa þau. Það er nýnæmi því að yfirleitt tapa menn henni.“6 góð ráð fyrir aldraða í heilsurækt1 Þolþjálfun 5-7 daga vikunnar fyrir hjarta, lungu og æðakerfið. Ganga, synda eða hreyfa sig rösklega þar sem áreynsla er stöðug í 20-40 mínútur Einnig má hreyfa sig til skiptis rösklega og rólega í 2-4 mínútur í 20-40 mínútur2 Styrktarþjálfun 2-3 sinnum í viku fyrir vöðva og liðamót með leiðsögn íþrótta- og heilsufræðings eða sjúkraþjálfara.3 Hita ávallt upp í 10-15 mínútur fyrir allar æfingar4 Liðka og teygja vöðva og liðamót í lok hverrar æfingar5 Borða holla og fjölbreytta fæðu Æskilegt er að borða eitthvað létt fyrir og eftir æfingar Neyta vatns eða ávaxtasafa meðan á æfingu stendur Borða reglulega yfir daginn til að viðhalda orkuþörf Neyta reglulega ávaxta og grænmetis Varast sykurneyslu, áfenga drykki og tóbak6 Líkams- og heilsurækt er langtímamarkmið en ekki átaksverkefni Njóta þess að stunda hreyfingu, utan- sem innanhúss, í öruggu umhverfi Stunda heilsurækt með jákvæðu hugarfari
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira