Kólumbía í fyrsta sinn í 8-liða úrslit | Myndir

Kólumbíumenn tóku strax frumkvæðið í leiknum og voru mun meira með boltann. Þeir fundu þó fáar leiðir í gegnum vörn Úrúgvæ sem lá mjög aftarlega.
Það þurfti eitthvað sérstakt til að brjóta lærisveina Oscars Tabarez á bak aftur og það kom frá James Rodriguez sem kom Kólumbíu yfir á 28. mínútu með stórkostlegu marki. Hann tók þá boltann á bringuna rétt fyrir utan D-bogann, sneri sér og þrumaði boltanum í slána og inn. Magnað mark hjá frábærum leikmanni.
Staðan var 1-0 í hálfleik, en það voru ekki liðnar nema fimm mínútur af seinni hálfleik þegar Rodriguez bætti öðru marki við. Það var ekki síður glæsilegt.
Kólumbíumenn létu boltann ganga frá hægri til vinstri þar sem bakvörðurinn Pablo Armero fékk boltann. Hann sendi yfir á fjærstöngina þar sem Juan Cuadrado reis hæst og skallaði boltann fyrir markið á Rodriguez sem setti boltann í markið af stuttu færi. Þetta var fimmta mark Rodriguez á HM en hann er nú markahæsti leikmaður mótsins.
Úrúgvæar reyndu hvað þeir gátu, en vörn Kólumbíu var sterk og fyrir aftan hana átti David Ospina mjög góðan leik í markinu. Það sást langar leiðir að Úrúgvæ saknaði Luis Suarez sem var dæmdur í fjögurra mánaða bann eins og frægt er orðið fyrir að bíta Giorgio Chiellini í leik gegn Ítalíu á dögunum.
Besta færi Úrúgvæa fékk hægri bakvörðurinn Maxi Pereira á 78. mínútu þegar hann komst inn fyrir kólumbísku vörnina, en Ospina varði skot hans. Sá síðarnefndi varði sömuleiðis vel skot fyrir utan vítateig frá Cristian Rodriguez og Edinson Cavani í seinni hálfleik.
Úrúgvæ tókst hins vegar ekki að skora og Kólumbíumenn unnu leikinn 2-0 og er komnir í átta-liða úrslit í fyrsta sinn í sögunni. Þar mætir liðið heimamönnum í Brasilíu, en leikurinn fer fram á Maracana á föstudaginn.
Tengdar fréttir

Veðmálafyrirtæki segir upp samningi við Suárez
Veðmálafyrirtækið 888poker sagði upp samningi sínum við Luis Suárez í morgunsárið rúmlega mánuði eftir að samstarf þeirra við úrúgvæska framherjann hófst.

Reyndi Suárez að bíta Chiellini fyrir ári síðan?
Þessi mynd var ekki tekin í gær, Luis Suárez reyndi að bíta Chiellini fyrir ári síðan í leik Ítalíu og Úrúgvæ.

Viðbrögð við bitinu hjá Suárez á Twitter
Luis Suárez beit ítalska varnarmanninn Giorgio Chiellinni í öxlina.

167 manns veðjuðu á það að Suarez myndi bíta
Úrúgvæmaðurinn Luis Suárez virtist bíta ítalska varnarmanninn Giorgio Chiellini í leik Úrúgvæ og Ítalíu á HM í Brasilíu í gær. Flestir trúðu ekki sínum augum þegar þegar þeir horfðu á sjónvarpsútsendinguna frá leiknum en það voru ótrúlega margir sem „sáu" þetta fyrir eins og kemur fram í frétt ESPN.

Hefur fengið 35 leiki í bann án þess að fá rautt spjald
Suárez hefur alls verið dæmdur í 35 leikja bann án þess að fá eitt rautt spjald frá árinu 2010.

Luis Suárez beit leikmann Ítalíu
Úrúgvæinn gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik á HM 2014.

Ekki hægt að verja aðgerðir Suárez
Jamie Carragher telur að ekki sé hægt að breyta persónuleika Luis Suárez og að hann muni halda áfram að komast á forsíður blaðanna af kolröngum ástæðum.

Kólumbía byrjar vel
Kólumbía vann Grikkland með þremur mörkum gegn engu í C-riðli á HM í Brasilíu í dag, en leikið var í Belo Horizonte. Grikkland hefur nú tapað sex af þeim sjö leikjum sem liðið hefur leikið á HM frá upphafi.

Suárez: Þessir hlutir gerast inn á vellinum
Luis Suárez gerði lítið úr atvikinu þegar hann beit Giorgio Chiellini í viðtölum við úrúgvæska fjölmiðla eftir leikinn gegn Ítalíu í gær.

Suárez þarf að leita sér aðstoðar
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, telur að Luis Suárez þurfi að leita sér aðstoðar eftir að hann beit leikmann í þriðja sinn á ferlinum í leik Úrúgvæ og Ítalíu í gær.

Sjónarhorn leikskólakennara: Suarez hefur þörf fyrir athygli
Heiðar Örn Kristjánsson leikskólakennari stingur upp á því að nota viðurkenndar aðferðir úr uppeldi barna til að hjálpa knattspyrnumanninum Luis Suarez.

Hetja Úrúgvæmanna frá HM 1950 segir Suarez eiga skilið bann
Undanfarinn sólarhring hafa Úrúgvæmenn verið duglegir að verja háttarlag Luis Suarez á móti Ítölum þar sem Suarez virtist bíta Giorgio Chiellini, leikmann Ítalíu, í öxlina.

Chiellini sýndi bitfarið | Suárez meiddi sig í tönnunum
Luis Suárez komst upp með að bíta varnarmann Ítalíu í sigri Úrúgvæ á HM í dag.

Átta af tíu Ameríkuþjóðum á HM áfram í 16 liða úrslitin
Ameríkuþjóðirnar voru afar öflugar í riðlakeppni HM í Brasilíu sem lauk í kvöld en alls komust átta Ameríkuþjóðir af tíu í sextán liða úrslitin sem hefjast á laugardaginn.

Kólumbía vann nauman sigur
Kólumbía skaust upp í toppsæti C-riðilsins á Heimsmeistaramótinu með 2-1 sigri á Fílabeinsströndinni í dag.

Íslendingur vann tæpar 160 þúsund krónur á biti Suarez
Lagði allt á fyndið veðmál sem var með hæsta stuðulinn.

Sjáðu öll bitin hjá Suárez | Myndband
Luis Suárez hefur bitið andstæðing í hollensku deildinni, ensku úrvalsdeildinni og á HM.

Sýning hjá Kólumbíu gegn Japan
Kólumbía kláraði C-riðilinn með sigri og fullu húsi stiga.

Veit ekki hvort FIFA hafi nægilegar sannanir
Gylfi Þór Orrason á von á því að Luis Suárez verði dæmdur í langt keppnisbann ef aganefnd FIFA finnur fullnægjandi sönnun fyrir því að hann hafi bitið Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ í gær.

Kæmi Fowler ekki á óvart ef Suárez yrði seldur
Robbie Fowler hefur fengið nóg af hegðun Luis Suárez og myndi selja hann í sumar til þess að losna við vandræðin sem fylgja honum.

Landsliðsþjálfari Íslands: Bann hækkar verðmiðann á Suárez
"Suarez notaði örugglega lengi snuð sem útskýrir þetta kannski,“ segir Heimir Hallgrímsson.

Chiellini olli mér vonbrigðum
Diego Lugano, fyrirliði Úrúgvæ fannst Giorgio Chiellini gera of mikið úr því þegar Luis Suárez beit hann í leik Ítalíu og Úrúgvæ

Mágur Suarez vildi ekkert segja
Gonzalo Balbi, leikmaður KR og mágur Luis Suarez, vildi ekkert tjá sig um atvikið í leik Úrúgvæ og Ítalíu á HM í gær.

Suarez stal sviðsljósinu í sigri Úrúgvæ
Luis Suarez minnti enn og aftur á dómgreindarskort sinn er hann beit Giorgio Chiellini í 1-0 sigri Úrúgvæ á Ítalíu í dag.

Evrópumenn eru í herferð gegn Suárez
Lögmaður úrúgvæska markahróksins undirbýr vörn fyrir leikmanninn sem gæti átt von á löngu banni.

Maradona stendur við bakið á Suárez
Diego Maradona, einn af bestu fótboltamönnum allra tíma stendur þétt við bakið á Luis Suárez.

Chiellini: Suarez fékk of harða refsingu
Giorgio Chiellini, ítalski varnarmaðurinn og fórnarlamb bitsins hjá Luis Suarez, er á því að refsing Luis Suarez sé of hörð en þetta kemur fram í yfirlýsingu inn á heimasíðunni Ítalans.

Suarez dæmdur í fjögurra mánaða bann
Luis Suarez var dæmdur í fjögurra mánaða bann frá öllum keppnum fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ á mánudaginn. Bannið nær til félags- og landsliðs Suárez.

Skyggir á hversu frábær leikmaður hann er
Paul Scholes telur að fólk muni ekki muna eftir knattspyrnuhæfileikum Luis Suárez heldur eftir vandræðunum sem fylgdu honum.