Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 19. október 2026 18:53 Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar sigurmarkinu sínu í kvöld. Vísir/Anton Brink Hin nítján ára gamla Líf Joostdóttir van Bemmel tryggði Breiðabliki 21. Íslandsmeistaratitilinn í kvennafótboltanum í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið í Garðabænum.Breiðablik vann 1-0 sigur á Stjörnunni í síðasta leik næstsíðustu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta.Sigurinn færir Blikum sex stiga forskot á FH á toppnum þegar aðeins ein umferð er eftir. Blikakonur nýttu sér óvænt tap FH um helgina og því verður ekkert af úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn á föstudagskvöldið kemur.Breiðablik byrjaði leikinn betur og voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Líf kom gestunum yfir á 24. mínútu eftir frábært spil. Agla María Albertsdóttir sendi boltann inn fyrir vörn Stjörnunnar á Þórdísi Elvu Ágústsdóttur sem kom boltanum fyrir markið þar sem Líf mætti á fjærstöngina og kom boltanum í netið. Stjörnukonur fengu ágætis færi en skorti gæði á síðasta þriðjungi vallarins. Þá var Herdís Halla Guðbjartsdóttir örugg í marki Blika þegar á reyndi. Leikurinn var nokkuð jafn í síðari hálfleik og fengu bæði lið marktækifæri en fleiri urðu mörkin ekki. Blikar fögnuðu titlinum að leik loknum.Vísir/Anton Brink Atvik leiksins Aðdragandinn að marki Lífar var frábær, virkilega fallegt samspil hjá Blikum. Þórdís Elva, Hrafnhildur Ása og Líf hlaupa í átt að liðsfélögum sínum til að fagna marki Lífar.Vísir/Anton Brink Stjörnur og skúrkar Líf skoraði eina mark leiksins og tryggði liðinu þar með þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð. Líf var spræk í sóknarleik Blika í dag og skapaði hættu við mark Stjörnunnar. Stemning og umgjörð Frábær mæting hjá stuðningsmönnum Breiðabliks í dag. Það var sungið og trallað nánast allan leikinn. Virkilega gaman að sjá! Blikar fögnuðu vel með stúkunni eftir leik.Vísir/Anton Brink Dómarar Gunnar Freyr Róbertsson var á flautunni í dag. Honum til aðstoðar voru þeir Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú. Engin vafaatriði en Gunnar var heldur spjaldaglaður. Besta deild kvenna Breiðablik Stjarnan Íslenski boltinn Fótbolti