Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Andri Már Eggertsson skrifar 18. október 2026 14:00 FH - Þróttur FH - Þróttur besta deild kvenna í knattspyrnu Anton/Vísir Þróttur vann 0-4 útisigur gegn FH. Gestirnir byrjuðu betur og komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik. Undir lok síðari hálfleiks bættu Þróttarar við tveimur mörkum og leikurinn endaði með stórsigri gestanna. Niðurstaðan var ansi súr fyrir FH-inga þar sem Blikum nægir stig á morgun til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. FH-ingar byrjuðu betur og fengu færi til að brjóta ísinn. Það dró hinsvegar til tíðinda á 19. mínútu þegar gestirnir fengu vítaspyrnu. Thelma Lóa Hermannsdóttir braut á Rósey Björgvinsdóttur við vítateigslínuna. Vítaspyrnan var afar umdeild og FH-ingar vildu meina að brotið hafi verið fyrir utan teig ásamt því var þetta afar lítil snerting. Sæunn Björnsdóttir skoraði úr vítaspyrnunni og kom Þrótti yfir. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson, dómari leiksins, var í aðalhlutverki í dagVísir/Guðmundur Rúmlega korteri síðar bættu Þróttarar við öðru marki. Björg Gunnlaugsdóttir renndi boltanum fyrir markið á Sierra Marie Lelii sem skoraði af stuttu færi. Staðan 0-2 fyrir Þrótti sem var afar óvænt í ljósi þess að Þróttarar höfðu að engu að keppa á meðan FH-ingar þurftu sigur til að setja pressu á Blika og fá hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Staðan í hálfleik var 0-2. Gestirnir voru 0-2 yfir í hálfleikVísir/Guðmundur Guðni Eiríksson, þjálfari FH-inga reyndi að bregðast við stöðunni með því að gera tvöfalda breytingu eftir tæplega klukkutíma leik en það hafði lítil áhrif á leikmyndina. Undir lokin veðjuðu FH-ingar öllu í sóknarlínuna sem Þróttarar nýttu sér og það skilaði tveimur mörkum. Bríet Fjóla Bjarnadóttir gerði þriðja mark Þróttar á 89. mínútu og mínútu síðar skoraði Kayla Marie Rollins fjórða markið. Thelma Lóa Hermannsdóttir sækir að marki ÞróttarVísir/Guðmundur Niðurstaðan 0-4 sigur Þróttar og Breiðabliki dugir stig gegn Stjörnunni á morgun til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Þróttarar fagna markiVísir/Guðmundur Atvik leiksins Þróttarar fengu afar umdeilda vítaspyrnu í stöðunni 0-0. Gestirnir komust því yfir á 20. mínútu með afar ódýrum hætti. Stjörnur og skúrkar Sierra Marie Lelii var allt í öllu í leik Þróttar. Sierra kláraði færið sitt vel í öðru marki gestanna og reyndist FH-ingum erfið gegnumgangandi allan leikinn. Mollee Swift, markmaður Þróttar, var frábær á milli stanganna og varði hvern boltann á fætur öðrum. Thelma Lóa Hermannsdóttir fékk dæmda á sig vítaspyrnu í fyrri hálfleik sem varð til þess að Þróttarar komust yfir. Thelma var síðan tekin af velli eftir tæplega klukkutíma leik. Dómarinn Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson dæmdi leikinn. Aðalbjörn dæmdi ansi ódýra vítaspyrnu í stöðunni 0-0 sem setti leikinn í algjört uppnám. Aðalbjörn var með öll önnur atvik á hreinu í leiknum en þetta var ansi umdeilt og stórt atvik sem hafði mikla þýðingu og í raun kostaði Aðalbjörn FH-inga leikinn og þá von um úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Stemning og umgjörð Vegna veðurs byrjaði leikurinn klukkan 11 sem má teljast ansi óvenjulegur leiktími á Íslandi. Stuðningsmenn FH voru þó komnir á fætur og fjölmenntu á leikinn enda úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í boði með sigri. Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild kvenna FH Þróttur Reykjavík