Gömul sveitakirkja fær andlitslyftingu Kristján Már Unnarsson skrifar 3. október 2014 21:15
Eitt helsta djásn Barðstrendinga, 120 ára gömul sveitakirkja á bænum Haga, gengst nú undir viðamiklar endurbætur. Meðal annars þarf að endurnýja grjóthleðslu sem myndar grunn kirkjunnar. Oftar en ekki er kirkjan svipmesta bygging hverrar sveitar og gjarnan sú elsta. Mönnum er því ekki sama um hvað verður um þessi mannvirki. Kirkjan á Haga á Barðaströnd er friðuð enda að stofni til frá árinu 1892. Bárujárnið utan á er hins vegar illa farið en timburklæðningin undir í ágætis standi eftir allan þennan tíma, hluti tréverks telst þó ónýtur, eins og gluggafög. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, landslagsarkitekt og grjóthleðslumeistari, segir Haga höfuðból héraðsins og kirkjan og staðurinn eigi sér stórmerka sögu. Nú standi til að laga þessa 120 ára gömlu kirkju.Guðmundur Hrafn Arngrímsson, landslagsarkitekt og grjóthleðslumeistari.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Minjastofnun og Húsafriðunarnefnd hafa veitt styrk til verksins. Trésmiðjan TV-verk á Tálknafirði annast endurnýjun á timburverkinu en Guðmundur Hrafn mun sjá um að lagfæra grjóthleðslu sem kirkjan hvílir á. Hann segir mikla hleðslumenningu á Barðaströnd, eins og kirkjugarðsveggurinn er dæmi um, en búið var að múra yfir hleðsluna sem er undir kirkjunni. Til að laga hana þarf líklega að tjakka kirkjuna upp. „Þannig að þetta verður vandasamt verkefni og verður að gera þetta vel, með virðingu fyrir gömlu handbragði. Það verði prýði af þessu. Þetta er ekki bara burðarvirki heldur á þetta að prýða kirkjuna og verða hluti af ásýnd hennar,“ sagði Guðmundur Hrafn í viðtali í fréttum Stöðvar 2.Kirkjan að Haga að innan.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Sjá meira