Efnilegir Blikar svekktir að fá ekki að fara á Pallaball Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. október 2014 20:37 Ekki liggur fyrir hvort leikmenn meistaraflokks Breiðabliks muni gera sér glaðan dag annað kvöld og skella sér á Pallaball. Vísir/Vilhelm
Tuttugu ára aldurstakmark er á ball Páls Óskars í Smáranum annað kvöld, svokallað Pallaball. Tónleikar hafa farið fram árlega í Smáranum undanfarin í tengslum við uppskeruhátíð meistaraflokks og 2. flokks karla og kvenna í knattspyrnu hjá Breiðabliki. Aldurstakmarkið gerir það hins vegar að verkum að leikmenn 2. flokks karla og kvenna geta ekki mætt á ballið ólíkt því sem tíðkast hefur undanfarin ár. Er óhætt að segja að leikmenn beggja flokka séu svekktir en leikmenn í flokknum eru á aldrinum 17-19 ára. „Það ríkir mikil reiði,“ segir Andri Björn Indriðason, fyrirliði 2. flokks, í samtali við Vísi. Andri Björn, sem kemur fram fyrir hönd félaga sinna í flokknum, segir að sú hefð hafi skapast undanfarin ár að 2. flokkur karla og kvenna fagni árangri og vinnu sumarsins á lokadegi Íslandsmóts karla. Fyrst koma leikmenn saman þar sem borðað sé, veit verðlaun og í kjölfarið hafi allir skellt sér saman á ball. Breiðablik mætir Val í lokaumferð Pepsi-deildar karla á morgun en leikurinn hefur litla sem enga þýðingu fyrir Blika sem sigla lygnan sjó um miðja deild. „Við vitum ekki einu sinni hvort það verði lokahóf. Við höfum engar upplýsingar fengið,“ segir Andri Björn sem segir mikinn einhug ríkja meðal leikmanna bæði í karla- og kvennaflokki. Þetta sé viðburður sem leikmenn hafi hlakkað til í lengri tíma og sárt að fá ekki að fagna lokum tímabils á veglegan hátt eins og hefð hafi skapast. Andri Björn segir að leikmenn 2. flokks hafi fengið á sig mikla gagnrýni eftir ballið í fyrra. „Það er alveg absúrd,“ segir Andri Björn. Þeim hafi verið tilkynnt af starfsmanni félagsins að þeir hafi verið félaginu til skammar sem Andri felst ekki á.Auglýsing fyrir ballið sem hefst klukkan 22 annað kvöld.Munu styðja Breiðablik allt sitt líf Í tilkynningu sem leikmenn sendu frá sér kemur fram að leikmennirnir hafi ekki verið í verra ástandi en aðrir gestir á ballinu. Auk þess séu margir af þeim strákum sem þá voru í 2. flokki gengnir upp úr flokknum. Þá minna Andri Björn og félagar á að leikmenn í 2. flokki hafi dæmt fjölmarga leiki hjá yngri flokkum í sumar og þeir standi vaktina í gæslu á flestum leikjum meistaraflokks. Þá séu þeir einatt fúsir til að hjálpa félaginu sínu t.d. við aðstoð við Símamótið og parketlagningu í Fífunni. Aðspurður hvort ballið í ár sé ekki af annarri stærðargráðu en undanfarin ár og uppleggið hreinlega annað og breytt segir Andri að það geti vel verið. Böllin hafi engu að síður verið stór undanfarin ár, opið fólki í Kópavogi og Páll Óskar hafi einnig komið fram á ballinu í fyrra þótt ekki hafi verið um eiginlegt Pallaball að ræða. Stóra málið sé þó að leikmenn félagsins hafi getað gert upp sumarið saman og skemmt sér vel. „Fólk í stjórninni er búið að hafa samband við mig,“ segir Andri Björn í kjölfar þess að 2. flokkur sendi frá sér tilkynninguna. Hann segist þó enn engin svör hafa fengið. Nú þegar sólarhringur sé í ballið viti leikmenn ekki einu sinni hvort það sé uppskeruhátíð á morgun eða hvort hún verði yfir höfuð. „Okkur finnst það því vera mjög ósanngjart að fá ekki að hafa gaman og skapa fleiri góðar minningar eftir tímabilið hjá okkar félagi sem við munum örugglega styðja allt okkar líf. Þar sem þessu verður ólíklega breytt, þótt við vonum það, biðjum við bara um að betur verði staðið að sumum hlutum í þessu flotta og frábæra félagi og að á næsta ári fái 2. fl að vera með.“ Hvorki náðist í Borghildi Sigurðardóttur, formann knattspyrnudeildar Breiðabliks, né Eystein Pétur Lárusson, framkvæmdastjóra Breiðabliks, við vinnslu fréttarinnar.Eysteinn Lárusson.Mynd/Breiðablik.isUppfært klukkan 21:43 Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir í samtali við Vísi að málið sé á misskilningi byggt. Legið hafi fyrir fyrir hálfum mánuði að lokahófið yrði ekki annað kvöld heldur eftir tvær vikur. Hins vegar hafi upplýsingagjöf til leikmanna í 2. flokki greinilega verið ábótavant og það þyki honum miður. Leikmenn 2. flokks og meistaraflokks í karla- og kvennaflokki muni skemmta sér saman að tveimur viknum liðnum. Andri Björn er ánægður að búið sé að finna tíma á lokahóf og hlakkar til að skemmta sér með félögum sínum í Breiðabliki eftir hálfan mánuð.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Erlent Fleiri fréttir Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Sjá meira