„Á endanum nást alltaf niðurstöður“ Hjörtur Hjartarson skrifar 19. maí 2014 19:30
Óhætt er að fullyrða að ekki hafi verið meira umstang á skrifstofu ríkissáttasemjara í áraraðir. Eigi færri en fimmtán kjaradeilur inni á borði þar nú og fleiri á leiðinni. „Það er alveg rétt, þetta er orðin nokkuð góð skorpa,“ segir Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari. Frá verkfalli grunnskólakennara fyrir áratug má heita að launþegar hafi ekki beitt verkfallsvopninu í kjaradeilum síðan. Ekki einu sinni í kjölfar efnahagshrunsins 2008 skapaðist mikill órói á vinnumarkaðnum. Annað er hinsvegar uppi á teningnum núna. Sólahrings vinnustöðvun sjúkraliða og starfsmanna SFR á hjúkrunarheimilum hófst á miðnætti. Sáttafundur hófst núna síðdegis en á miðvikudaginn hefst allsherjarverkfall ef ekki semst fyrir þann tíma. Þá leggja grunnskólakennarar niður störf öðru sinni á miðvikudaginn náist ekki samkomulag á næstu tveimur dögum.Húsnæði ríkissáttasemjara„Almennu fréttirnar eru þær að það eru mjög málefnalegar umræða í þessum deilum og yfirleitt færast þær nær niðurstöðu. En það er ekki hægt að segja hvenær það verður eða getur orðið.” Icelandair felldi niður 11 ferðir í dag vegna manneklu og urðu tafir á mörgum ferðum einnig. Yfirvinnubann hjá flugfreyjufélagi Íslands tók gildi í gærmorgun og þá neita margir flugmenn að vinna yfirvinnu. Enn er ósamið við flugvirkja sem funduðu í dag. Sjómenn fiskiskipaflotans og samninganefnd útvegsmanna ræddu málin hjá ríkissáttasemjara í morgun en deilunni var vísað til ríkissáttasemjara fyrir tveimur árum. Ljóst má vera af þessari upptalningunni í þessari frétt að eftir stórátakalausan áratug á vinnumarkaðnum, í það minnsta hvað kjaradeilur varðar, erum við stödd í ólgusjó. Ríkissáttasemjari er þó æðrulaus gagnvart þeim verkefnum sem hann glímir við núna og eins þeim sem framundan eru. „Á endanum nást alltaf niðurstöður,” segir Magnús.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira