Grimmar æfingar skiluðu fyrsta sætinu Ólöf Skaftadóttir skrifar 14. júlí 2014 07:00 hlaupagarpur Þorbergur er duglegur að æfa. MYND/Úr einkasafni „
Þetta var góð tilfinning. Ég stefndi á þetta – bæði að vinna og setja brautarmet. Þannig að það var virkilega gaman að koma í mark,“ segir Þorbergur Ingi Jónsson, sem kom fyrstur í mark í hinu árlega Laugavegshlaupi og setti nýtt met, fjórar klukkustundir, sjö mínútur og fjörutíu og sjö sekúndur. „Ég bjó mig vel undir þetta og tók grimmar, langar æfingar. Ég æfði markvisst fyrir Laugaveginn í örugglega þrjá mánuði, en er annars alltaf að hlaupa,“ útskýrir Þorbergur. „Ég æfi hlaup. Það er nú reyndar ekki hægt að lifa af því á Íslandi, þannig að þess á milli sinni ég starfi sem véla- og orkufræðingur hjá Marel,“ segir Þorbergur, léttur í bragði. „Svo hleyp ég þegar ég get.“ Hlaupið gekk ekki áfallalaust fyrir sig. „Ég datt einu sinni svolítið illa, en það var bara til að kveikja á mér. Ég skrapaði mig aðeins, á hné og olnboga, en ekkert sem háði mér í hlaupinu, en ég er dálítið aumur núna.“ Þorbergur segist ætla að taka aftur þátt. „Ekki endilega á næsta ári samt. Ég á nóg eftir, en þegar maður tekur svona hlaup þá þarf maður að æfa sérstaklega fyrir þau og taka sér svo hvíld á eftir. Þannig að ég vel mér hlaup sem ég ætla að ná árangri í og einblíni á þau,“ segir Þorbergur að lokum.
Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Sjá meira