Rannsaka minnkandi kosningaþátttöku Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. júlí 2014 15:53 Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra undirritaði í dag samstarfssamning sem felur í sér rannsókn á kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru þann 31. maí síðastliðinn. Rannsóknin er samstarfsverkefni innanríkisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og doktorsnema við Háskólann í Mannheim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Rannsóknin miðar að því að kanna ástæður fyrir minnkandi kjörsókn en í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum minni en hún hefur nokkru sinni verið í lýðveldissögunni. Á landinu öllu var heildarkjörsókn 65,9 prósent og í stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, var hún alls staðar undir 63 prósent. Í kosningunum 2010 hafði kjörsókn minnkað mikið frá því í kosningunum áður eða frá 78,7 prósentustigum árið 2006 niður í 73,5 prósent. Leitað verður svara við þeim spurningum af hverju kjósendur tóku þátt eða tóku ekki þátt, hvaða áhrif það hafði og hvernig hægt væri að bregðast við því. Miðað er við að rannsókninni verði lokið í september/október. Eftirfarandi er haft eftir Hönnu Birnu Kristjásdóttur, innanríkisráðherra:„Rétturinn til að kjósa er mikilvægur þáttur í lýðræðissamfélagi og það er áhyggjuefni ef færri kjósendur nýta sér þennan rétt. Við teljum rétt að láta kanna ástæður þess og við vonum að þessi rannsókn varpi ljósi á það. Í framhaldinu munum við, ásamt fjölmörgum öðrum aðilum, ræða með uppbyggilegum og jákvæðum hætti lausnir og leiðir til að tryggja áfram öfluga þátttöku í kosningum á Íslandi.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira