Fjölmargir rétt fram hjálparhönd Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 20. desember 2014 00:00
Yfir tuttugu manns hafa nú aðstoðað og sett sig í samband við einstæða móður sem á dögunum sagði frá því að hún kviði fyrir jólunum. Í fréttaskýringaþáttunum Brestum var á dögunum fjallað um fátækt á Íslandi og birtingarmyndir hennar. Á meðal viðmælenda var Vallý Einarsdóttir, háskólamenntuð kona sem missti vinnuna í sumar og hefur síðan lifað á um fimmtíu þúsund krónum á mánuði. Í þættinum lýsti hún því meðal annars að hún ætti ekki bíl, væri ekki með internet og hlutir eins og leikhúsferðir, sund og bíó væri munaður sem þær mæðgur gætu ekki leyft sér. Vallý segir að fjöldi fólks hafi sett sig í samband við hana eftir þáttinn og boðist til að hjálpa henni á einn eða annan hátt. „Ég er búin að fá helling af skilaboðum sem eru öll jákvæð og uppbyggjandi. Við höfum fengið bíómiða og gjafabréf í leikhús, bónuskort og ýmislegt fleira,“ segir Vallý. Hún segist vera djúpt snortin yfir viðbrögðunum og að þau hafi komið sér á óvart. Þær mæðgur hafa nú fengið þá hjálp sem þær þurfa. „Ég held að þakklæti sé ekki nógu stórt orð til að lýsa því hvernig okkur líður. Þetta er bara ótrúlegt og við erum endalaust þakklátar,“ segir Vallý sem kveðst ekki lengur kvíða fyrir jólunum.
Mest lesið Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent Fleiri fréttir Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Sjá meira