Gert að sæta nálgunarbanni gagnvart barnsmóður og dætrum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 07:58 Ógn er talin stafa af manninum. vísir/getty
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmanni verði gert að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni gagnvart fyrrum eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Lögregla telur ógn stafa af manninum. Honum er bannað að koma nær heimili þeirra en fimmtíu metra og má hann ekki setja sig í samband við þær með neinum hætti. Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að maðurinn hafi setið í kringum heimili fyrrum eiginkonu sinnar og dætra og valdið miklu ónæði í skóla og frístundaheimili eldri dótturinnar þar sem hann sæki mjög stíft í að hitta hana fyrir. Sú hegðun hafi valdið dótturinni mikilli vanlíðan og hafa skólayfirvöld lýst yfir miklum áhyggjum vegna þessa. Stúlkan sagði í samtali við barnaverndarfulltrúa að hún óttist föður sinn og að hann hafi sagt við hana að hann ætli að taka hana með sér. Þá hafi dóttirin óttast að hann myndi gera móður hennar eitthvað illt. Í júlí í fyrra sætti maðurinn sex mánaða nálgunarbanni og hefur konan tvívegis lagt fram beiðni um nálgunarbann síðan þá. Fyrst í júní síðastliðnum og aftur í september en beiðni hennar var þá hafnað. Hjónin fyrrverandi voru með sameiginlega forsjá en dæturnar áttu að eiga lögheimili hjá móður sinni.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira