Innlent

Gæslan kölluð aftur fyrir allsherjarnefnd Alþingis

Heimir Már Pétursson skrifar
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar koma öðru sinni fyrir allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis á morgun vegna innflutnings á hríðskotabyssum sem ekki hafa verið tollafgreiddar.
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar koma öðru sinni fyrir allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis á morgun vegna innflutnings á hríðskotabyssum sem ekki hafa verið tollafgreiddar. vísir
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðir fyrir allsherjar- og menntamálanefnd öðru sinni á morgun til að skýra með hvaða hætti var staðið að innflutningi hríðskotabyssa til landsins frá Noregi. En í ljós hefur komið að Gæslan sniðgekk algerlega Tollinn við innflutninginn á vopnunum.

Tollurinn innsiglaði geymslur Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli í þarsíðustu viku þar sem á þriðja hundrað hríðskotabyssur frá norska hernum eru geymdar, en þær hafa enn ekki fengið tollafgreiðslu eins og við greindum frá í fréttum okkar á Stöð 2 á laugardag.

Er það í sjálfu sér ekki alvarlegt mál þegar löggæslustofnun á í hlut?

„Jú, það má auðvitað segja það. Við í nefndinni hjá mér, allsherjar- og menntamálanefnd, höfum verið að höfum verið að kalla fram upplýsingar um þetta mál á undanförnum vikum. Við erum með fund á morgun þar sem við höfum þá kallað Landhelgisgæsluna til okkar að nýju til að fara yfir þennan þátt málsins. Við þurfum auðvitað að fá upplýsingar beint frá þeim sem getur gefið okkur þær,“ segir  Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.

Hún segir að best hefði verið að fá allar staðreyndir málsins fram strax og málið kom upp. Gæslan eins og aðrar stofnanir verði að fara að lögum.

„Jú, ég myndi halda að það væri reglan sem ætti að vera en við fáum skýringar á þessu á morgun,“ segir Unnur Brá.

Þannig að nefndin og þú sem formaður telijið fulla þörf á að skoða þetta mál?

„Já, við höfum verið að skoða þetta mál og viljum fá fram allar hliðar þess þannig að við attum okkur á heildarmyndinni,“ segir Unnur Brá.

Þá kann málið að koma fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem Ögmundur Jónasson fyrrverandi innanríkisráðherra er formaður, sem minnir á að málið verði tekið fyrir í allsherjar- og menntamálanefnd á morgun.

„Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis mun bíða átekta þar til þeirri skoðun er lokið. En ég er sammála því að það er nauðsynlegt að fá allar staðreyndir þessa máls á borðið og ákveða síðan hvað menn geri í framhaldinu,“ segir ögmundur.

En að sjálfsögðu sé mikilvægt að Landhelgisgæslan eins og aðrar stofnanir fari að lögum.

„Að sjálfsögðu er það svo. En fyrsta skrefið er að fá á óyggjandi hátt atburðarrásina, framvinduna, ákvörðunartöku í málinu. Fá með öðrum orðum allar staðreyndir upp á borðið,“ segir Ögmundur Jónasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×