Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn tveimur konum Stefán Árni Pálsson skrifar 1. október 2014 14:37 visir/gva
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að konu, slegið hana hnefahöggi í andlitið og skömmu síðar sparkað í höfuð hennar þar sem hún lá í götunni. Fram kemur í ákærunni að konan hafi í kjölfarið staðið upp og maðurinn því næst slegið hana hnefahöggi í andlitið. Árásin átti sér stað 1. janúar 2013 á Hverfisgötunni. Við það hlaut konan heilahristing, eymsli í hársverði, sár innan á neðri vör, los á báðum miðframtönnum í efri gómi auk þess sem það brotnaði upp úr miðframtönn í efri gómi vinstra megin. Telst árásin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa veist að annarri konu, sama morgun, og slegið hana hnefahöggi í andlitið svo hún féll í götuna. Við það hlaut hún heilahristing og eymsli yfir kjálkalið hægra megin. Telst það varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan sem maðurinn á að hafa ráðist fyrst á krefst þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta samtals að fjárhæð kr. 1.500.000, auk dráttarvaxta skv. lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá því mánuður er liðinn frá því að krafa þessi er kynnt ákærða til greiðsludags.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira