Vagnstjóri Strætó sagði upp vegna öryggismyndavélar Stefán Árni Pálsson skrifar 2. október 2014 14:33 Reynir Jónsson, framkvæmdarstjóri Strætó. visir/stefán „
Eftirlitsmyndavélarnar eru ekki orðnar virkar en eru komnar í alla vagna,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdarstjóri Strætó. Fram kom í frétt Vísis á síðasta ári að fyrirhugað væri að setja upp öryggismyndavélar í alla strætisvagna við reglubundna endurnýjun þeirra. Nú er sú vinna á lokastigi. „Kerfið verður formlega gangsett á næstu vikum. Við höfum verið að kynna þetta fyrir vagnstjórum okkur að undanförnu og það ríkir almenn ánægja með kerfið. Þetta hefur verið unnið í mikilli sameiningu við vagnstjórana,“ segir Reynir.Reykjavík Vikublað greindi frá því á dögunum að Strætó hefði sent bréf til vagnstjóra sinna sem ekki hefði mælst vel fyrir. Þar var bent á að fyrir lægi að setja upp öryggismyndavélar í vögnunum og vagnstjórum bent á að þeir gætu andmælt því. Myndu þeir nýta sér andmælarétt sinn yrði þeim hins vegar sagt upp störfum. Reynir segir í samtali við Vísi að einn vagnstjóri hafi sagt upp í kjölfarið en ekki hafi borið á athugasemdum frá öðrum vagnstjórum. Reynir sagði í viðtali við Vísi á sínum tíma að dæmin sýndu að öryggismyndavélar gætu komið að gagni en ofbeldi beindist að vagnstjórum og farþegum í vaxandi mæli. Í frétt um málið í mars á síðasta ári sagði Reyni;„Það hefur komið upp að vagnstjórar hafa orðið fyrir árás, allt frá því að kastað er yfir þá hveiti yfir í að þeim sé ógnað með vopni. Síðan er alltaf þetta hefðbundna skítkast á vagnstjórana við lýði. Þeir eru kallaðir aumingjar og þar fram eftir götunum. Oftast eru þetta drukknir einstaklingar eða fólk í annarlegu ástandi en þetta er þá liður í því að bregðast við þessari þróun.“ Í flestum nágrannalöndum eru öryggismyndavélakerfi í strætisvögnum.
Tengdar fréttir Loks hægt að borga með síma í strætó „Við erum með greiðsluappið í prófunum og forritun er í raun lokið,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó. 2. október 2014 14:02 Verður sagt upp nýti þeir sér andmælarétt Strætó sendi nýverið bréf til vagnstjóra sinna þar sem þeim var tilkynnt að til stæði að koma fyrir myndavélabúnaði í strætisvögnum fyrirtækisins. 27. september 2014 11:06 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Sjá meira
Loks hægt að borga með síma í strætó „Við erum með greiðsluappið í prófunum og forritun er í raun lokið,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó. 2. október 2014 14:02
Verður sagt upp nýti þeir sér andmælarétt Strætó sendi nýverið bréf til vagnstjóra sinna þar sem þeim var tilkynnt að til stæði að koma fyrir myndavélabúnaði í strætisvögnum fyrirtækisins. 27. september 2014 11:06