Innlent

Leitar vitna vegna árásar á Ísafirði

Atli Ísleifsson skrifar
Árásin var gerð á milli klukkan þrjú og hálf fjögur um nóttina.
Árásin var gerð á milli klukkan þrjú og hálf fjögur um nóttina. Vísir/Róbert
Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás sem varð aðfaranótt laugardagsins 20. september síðastliðinn fyrir framan skemmtistaðinn Edinborg á Ísafirði. 

Árásin var gerð á milli klukkan þrjú og hálf fjögur um nóttina en þá kom til átaka milli manna sem endaði með því að einn hlaut skurðáverka í andliti og miklar blæðingar. 

Í tilkynningu frá lögreglunni hvetur hún þá sem urðu vitni að aðdraganda árásinnar eða henni sjálfri að hafa samband í síma 450 3730.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×