„Það er sko búið að kjósa um stjórnarskrána“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. október 2014 16:50 Frá kosningum um tillögur stjórnlagaráðs árið 2012. Vísir/Pjetur
Hátt í 100 umsagnir bárust til stjórnarskrárnefndar vegna fyrstu áfangaskýrslu nefndarinnar sem birt var í júní síðastliðnum. Öllum var frjálst að senda inn athugasemdir vegna skýrslunnar til 1. október sl. og eru þær birtar á vef forsætisráðuneytisins. Margar athugasemdanna snúa að því að virða skuli þjóðaratkvæðagreiðslu sem fór fram þann 20. október 2012. Þá samþykktu 67% þeirra sem tóku afstöðu að tillaga að nýrri stjórnarskrá, sem Stjórnlagaráð lagði fram á sínum tíma, skyldi lögð til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Kleópatra Mjöll Heiðudóttir segir til dæmis í sinni athugasemd: „Hurru Það er sko búið að kjósa um stjórnarskrána Held þið séuð eitthvað að ruglast en nó wörrís það kemur fyrir besta fólk“ Þá vill Pétur V. Maack Pétursson að „hin falska stjórnarskrárnefnd“ segi af sér: „Ég sem kjósandi og borgari hafna því að þessi svokallaða stjórnarskrárnefnd sé að fjalla um þetta smáræði sem á að bjóða fólki. Ég tók þátt í og kaus stjórnlagaráð og í framhaldi af því greiddi ég atkvæði um tillögurnar ásamt 70% annarra kosningabærra manna sem villdu nýja stjórnarskrá. Því geri ég þá kröfu að hin falska stjórnarskrárnefnd sem nú var skipuð segi af sér og unnið verði í anda Stjórnlagaráðs.“ Forsætisráðherra skipaði nefndina í nóvember í fyrra í samræmi við samkomulag allra þingflokka. Nefndin á meðal annars að hafa hliðsjón af vinnu undanfarinna ára, m.a. tillögum stjórnlagaráðs og stjórnlaganefndar, niðurstöðum ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu og starfi þeirrar stjórnarskrárnefndar sem starfaði 2005-2007. Stefnt er að því að vinnu nefndarinnar ljúki tímanlega svo að hægt sé að samþykkja frumvarp til breytinga á stjórnarskránni á yfirstandandi kjörtímabili.
Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Innlent Afsögn enn ódagsett Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sjá meira