Guðmundur Steinn: Enginn hringt nema þú Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. október 2014 13:00 Guðmundur Steinn Hafsteinsson var markakóngur í 1. deild með Víkingi Ólafsvík 2012. vísir/andri marinó
Guðmundur Steinn Hafsteinsson, sóknarmaður Fram, kom sterkur inn í lið Safamýrarpilta um mitt mót í Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa glímt við mikil meiðsli fram að því. Hann skoraði í heildina fimm mörk í tólf leikjum, þar af tvö mörk í ævintýralegum sigri á Fram í lokaumferðinni sem dugði þó liðinu ekki til að halda sæti sínu í deildinni. Guðmundur segist ekki vera byrjaður að íhuga hvað hann ætli að gera næsta sumar. Hann er með samning við Fram út næsta tímabil, en það kitlar óneitanlega að vera áfram í efstu deild. „Ég ætla bara að sjá til hvernig þetta þróast. Ég er ekki búinn að vera að pæla neitt í þessu. Ég er með samning við Fram, en auðvitað vill maður spila í betri deild en 1. deildinni. Það er samt ekkert sem ég tek ákvörðun um einn,“ segir Guðmundur Steinn í samtali við Vísi. Sóknarmenn vaxa ekki á trjánum í íslenska boltanum og má búast við að einhver lið úr efstu deild hafi samband við Guðmund Stein. Það hefur þó ekki gerst ennþá. „Það hefur enginn hringt nema þú,“ segir Guðmundur Steinn léttur. „Maður heyrir bara eitthvað svona út frá sér en það er ekkert meira en það. Það er ekki sniðugt að taka ákvarðanir þegar maður er nýfallinn. Ég ætla bara að ná þessu svekkelsi úr mér og sjá svo til. Svo er líka mikilvægt að sjá hvernig þjálfaramálin fara,“ segir Guðmundur Steinn Hafsteinsson.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Framarar vilja að Bjarni haldi áfram Snorri Már Skúlason, formaður meistaraflokksráðs Fram, segir gagnkvæman vilja þjálfara og stjórnar knattspyrnudeildar að Bjarni Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins. 6. október 2014 18:04 Bjarni: Tek ekki þessa ákvörðun einn Bjarni Guðjónsson fundar með stjórn Fram í dag, en hann hefur áhuga á að halda áfram í Safamýrinni. 6. október 2014 00:01 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira
Framarar vilja að Bjarni haldi áfram Snorri Már Skúlason, formaður meistaraflokksráðs Fram, segir gagnkvæman vilja þjálfara og stjórnar knattspyrnudeildar að Bjarni Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins. 6. október 2014 18:04
Bjarni: Tek ekki þessa ákvörðun einn Bjarni Guðjónsson fundar með stjórn Fram í dag, en hann hefur áhuga á að halda áfram í Safamýrinni. 6. október 2014 00:01