Skráning í Reykjavíkurmaraþon hefur aldrei verið meiri Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2014 17:59 Metfjöldi stefnir á þátttöku í maraþoni en 1.037 hafa nú skráð sig. Gamla þátttökumetið var sett í fyrra þegar 977 skráðu sig. Vísir/Daníel
7.880 manns hafa nú skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer 23. ágúst næstkomandi. Það er um 7 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Metfjöldi stefnir á þátttöku í maraþoni en 1.037 hafa nú skráð sig, en gamla þátttökumetið var sett í fyrra þegar 977 skráðu sig. Í fréttatilkynningu frá ÍBR og Reykjavíkurmaraþoni segir að 10 kílómetra vegalengdin sé sem fyrr vinsælasta vegalengdin, en rúmlega helmingur skráða þátttakenda stefnir á að hlaupa þá vegalengd eða 4.103. Þá er einnig hægt að skrá sig í hálft maraþon, 3 kílómetra skemmtiskokk, Latabæjarhlaup og boðhlaup þar sem tveir til fjórir skipta á milli sín maraþonvegalengdinni. Skráðir erlendir þátttakendur eru nú rúmlega tvö þúsund og af sextíu mismunandi þjóðernum. Flestir erlendu þátttakendanna koma frá Bandaríkjunum, 468 manns, og næst flestir frá Bretlandi, 353. Þá eru skráðir Þjóðverjar 219 talsins, Kanadabúar 193 og Norðmenn 106. Netskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka lýkur fimmtudaginn 21.ágúst kl. 13, en einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið á skráningarhátíð í Laugardalshöll en þá er þátttökugjaldið hærra. „Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is. 2.506 hlauparar eru byrjaðir að safna áheitum á vefnum og hafa þegar safnast rúmlega 17 milljónir til góðra málefna en það er 7% hærri upphæð en búið var að safna á sama tíma í fyrra. Allir skráðir þátttakendur geta safnað áheitum til styrktar góðum málefnum á hlaupastyrkur.is en hægt er að velja á milli 155 mismunandi góðgerðafélaga,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira