Sækir um stöðu bæjarstjóra 22 ára: „Þetta er spennandi tækifæri“ Bjarki Ármannsson skrifar 21. júlí 2014 18:00 Ásgeir Elvar stökk á tækifærið og sótti um bæjarstjórastarfið. Vísir/GVA/Aðsend „
Þó ég sé ekki að fara í þetta handviss um að fá starfið, þá er þetta samt sem áður fúlasta alvara,“ segir Ásgeir Elvar Garðarson, yngsti umsækjandinn í stöðu bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Ásgeir er nýútskrifaður viðskiptafræðingur úr Háskólanum í Reykjavík, verður 23 ára á þessu ári og starfar í dag sem rekstrarstjóri á bílaleigunni Geysi.Efar að fólk vilji breyta til „Þetta er skemmtilegt tækifæri,“ segir Ásgeir. „Ég sæki þarna um ekki á einhverjum pólitískum grunni, heldur miklu frekar faglegum grunni. Þeir vilja fá ópólitískan aðila. Það má deila um hversu ópólitískur er hægt að vera, en þessi staða er auglýst út frá þessum faglegu forsendum.“ Ásgeir viðurkennir að það er stórt stökk að fara úr því að stjórna um það bil fimmtíu manns hjá bílaleigunni í það að stjórna rúmlega fjórtán þúsund manna bæjarfélagi. En á hann von á því að hljóta stöðuna fram yfir fyrrverandi bæjarstjóra og framkvæmdastjóra? „Menn tala alltaf um það í kosningum, en ég efa að menn færu að hleypa einhverjum svona ungu, nýju blóði í einhverja svona stjórnunarstöðu,“ segir hann. „Mönnum þykir ábyggilega þægilegra að sitja bara í gamla farinu og hafa einhverja gamla stjórnsýslubolta í þessu starfi í stað þess að breyta kannski til og fá nýtt blóð og þess háttar.“Ungt fólk tilbúið í ábyrgðarstöður Ásgeir segist hafa viljað stökkva á tækifærið, meðal annars til þess að vekja athygli á því að ekki sé allt ungt fólk áhugalaust um stjórnmál. „Það er til eitthvað af ungu fólki sem er tilbúið að sinna ábyrgðarstöðum í til dæmis sveitarfélögum, ef ekki bara ríkisstjórninni. En það er kapítuli út af fyrir sig.“
Tengdar fréttir Tuttugu og einn vill verða bæjarstjóri í Reykjanesbæ Fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, framkvæmdastjóri Norðurþings og fyrrverandi framkvæmdastjóri WOW air eru á meðal umsækjenda. 21. júlí 2014 11:26 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Sjá meira
Tuttugu og einn vill verða bæjarstjóri í Reykjanesbæ Fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, framkvæmdastjóri Norðurþings og fyrrverandi framkvæmdastjóri WOW air eru á meðal umsækjenda. 21. júlí 2014 11:26