Mikið um stúta í höfuðborginni 13. júlí 2014 09:10 Vísir/Vilhelm
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði töluverð afskipti af fólki sem ók undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Þannig var karlmaður um þrítugt tekinn úr umferð um klukkan hálf þrjú í austurborginni þar sem hann ók bifreið á Snorrabraut. Hann var undir áhrifum fíkniefna að sögn lögreglu og bifreiðin á röngum skráningarmerkjum. Maðurinn hafði að auki áður verið sviptur ökuréttindum og var jafnframt eftirlýstur vegna rannsókna annarra brota. Hann gistir nú fangageymslu og verður yfirheyrður þegar hann verður í ástandi til þess. Um klukkan þrjú var karlmaður á sama aldri tekinn úr umferð. Sá ók bifreið í Langholtshverfi. Hann var undir áhrifum fíkniefna, sviptur ökuréttindum og hafði fíkniefni í fórum sínum. Upp úr klukkan tvö hljóp karl á fertugsaldri frá bifreið sinni eftir að lögreglumenn höfðu stöðvað akstur hans í Túnahverfi í Kópavogi. Hann var síðan handtekinn skammt frá. Maðurinn var áberandi ölvaður og hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Þá var karl á þrítugsaldri stöðvaður í Fellahverfi upp úr klukkan fjögur í nótt. Hann var undir áhrifum fíkniefna, hafði áður verið sviptur ökuréttindum og hafði fíkniefni í fórum sínum. Lögregla koma að þremur rúmlega tvítugum konum við Þjóðarbókhlöðuna upp úr miðnætti og voru þær að meðhöndla kannabis. Fíkniefnin sem þær voru með voru haldlögð og teknar voru skýrslur á vettvangi. Upp úr klukkan fjögur var síðan karl á fimmtugsaldri stöðvaður í akstri á Hverfisgötu. Hann var undir áhrifum fíkniefna við aksturinn að sögn lögreglu.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira