Fékk glas í ennið á djamminu: „Ég fékk blóð í augun og ofan í kok“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 14. júlí 2014 12:36 Kristrún fékk skurð á ennið, kúlu og dúndrandi hausverk. „
Ég var bara að dansa við manninn minn þegar ég fæ allt í einu þungt högg og svo varð allt í blóði,“ segir Kristrún Gunnarsdóttir um upplifun sína á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi á laugardagskvöld. Margt var um manninn á staðnum, en þar lék Sálin hans Jóns míns fyrir dansi. Einhver inni á staðnum virðist hafa kastað glasi yfir dansgólfið og endaði það í enni Kristrúnar. „Ég fékk skurð á ennið. Það lak svoleiðis blóðið úr þessu. Eins og það hafi verið framið morð. Ég fékk blóð í augun og ofan í kok,“ útskýrir hún.. Hún þakkar fyrir að glasið hafi ekki endað neðar. Hún hefði getað stórslasast ef glasið hefði endað í andliti hennar.Fór á slysavarðstofuna Kristrún þakkar manninum sínum fyrir skjót viðbrögð „Hann fór með mig þarna að einhverjum bar, stökk á bakvið og náði í handklæði. Einn dyravörðurinn á staðnum kom okkur svo til hjálpar. Hann fór með okkur í bakherbergi og hjálpaði okkur að hægja á blæðingunni. Hann var rosalega hjálpsamur.“ Kristrún þurfti að leita á slyavarðstofuna þar sem gert var að sárum hennar. „Læknunum tókst að líma sárið saman, það þurfti ekki að sauma. Nú er ég bara með kúlu á enninu. Og dúndrandi hausverk. Skurðurinn var ekki stór en hann var mjög djúpur.“Alveg ömurleg tilfinning Höggið sem Kristrún fékk var ansi þungt. „Mig grunaði strax að þetta hefði verið glas eða flaska sem einhver kastaði. Þetta var alveg ömurleg tilfinning. Ég sá ekkert fyrir blóði þarna. Mér finnst það hrikalegt að maður geti ekki farið út að skemmta sér án þess að lenda í svona. Að fólki detti í hug að kasta glasi inn í hóp af fólki finnst mér alveg ótrúlegt,“ segir hún. Kristrún hvetur eigendur skemmtistaða að skipta úr glerglösum yfir í plast. „Það ætti í raun að banna gler inni á öllum skemmtistöðum. Þetta getur auðvitað verið hættulegt þegar einhver kastar svona yfir hóp af fólki.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira