Hætta á að myndskilaboð misskiljist - „Netið gleymir engu“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. maí 2014 16:14 „Þegar ung og ómótuð börn lenda í því að myndum af þeim eða einhverjum upplýsingum um þau er dreift getur það haft afdrifaríkar afleiðingar og mér er mjög umhugað um að koma í veg fyrir slíkt.“
Tillaga Lífar Magneudóttur, fulltrúa VG í skóla- og frístundaráði, um að sett verði af stað fræðslu- og forvarnarátak fyrir börn og ungmenni í grunnskólum og frístundarstarfi um miðlun mynda með nútímatækni var samþykkt í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar. Tillagan felur einnig í sér að kenna ungmennum ábyrgðina sem því fylgir að umgangast og nota slíka miðla og fræða þau um skaðsemi sem notkunin getur valdið. „Þetta er alltaf að koma upp aftur og aftur. Þetta úrræðaleysi, sem bæði kennarar og foreldrar standa fyrir þegar viðkvæm mál koma upp,“ segir Líf í samtali við Vísi. Tillagan var samþykkt af einróma. „Það eru allir með mér í liði í dag.“ Áherslan á m.a. að vera á Snapchat, Instagram, Vimeo, Vine og myndbirtingar á hvers kyns félagsmiðlum. Einnig þarf að standa að fræðslu um viðbrögð og forvarnir fyrir stjórnendur skóla, kennara, frístundafræðinga, aðra starfsmenn og foreldra.Ekki allir foreldrar tæknilæsir „Við erum með alls konar dæmi. Til dæmis að krakkar sendi myndir af sér fáklæddum til einhvers sem þeir þekkja. Það er hætta á því að myndskilaboð misskiljist eða að sá sem fær myndina í hendur sendi þær áfram og því miður eru fjölmörg dæmi um slíkt og netið gleymir engu,“ segir Líf. Það þurfi að liggja skýrt fyrir hvernig bregðast eigi við þegar slík mál koma upp. „Fyrstu viðbrögðin skipta allra mestu máli. Það þarf að færa kennurum verkfæri í hendurnar, einhverjar leiðbeiningar til þess að fara eftir.“ „Okkur finnst líka brýnt að leggja áherslu á forvarnir og fræðslu. Það er alltaf best að fyrirbyggja í stað þess að meðhöndla,“ segir Líf. „Semsagt að taka á vandanum áður en hann verður of umfangsmikill.“ Ekki séu allir foreldrar og þeir sem vinna með börnum tölvu- og tæknilæsir. Tæknin hafi þróast hratt og því sé ekki skrítið að það nái ekki allir að fylgjast með. Sem dæmi megi nefna þegar Vine-stjörnur gerðu allt vitlaust í Smáralind. Unglingar hópuðust í Smáralind til þess að berja stjörnurnar augum en foreldrar þeirra og þjóðfélagið allt vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið. Vine er eitt dæmi um nýjan samfélagsmiðil sem nýtur mikilla vinsælda hjá ungu fólki. Þar deila notendur stuttum myndböndum. Miðillinn var orðinn gríðarlega vinsæll meðal unglinga á stuttum tíma. „Það er gott dæmi um hversu mikil áhrif þessir samfélagsmiðlar hafa,“ segir Líf.Notkun netmiðla fylgir ábyrgð „Við verðum að gera ungmennunum grein fyrir því að það fylgir því ábyrgð að nota netmiðla. Eins og við erum með umferðarreglur sem við kennum þeim, þá þurfa að vera ákveðnar umgengnisreglur á netinu sem öllum ber að fara eftir. „Þegar ung og ómótuð börn lenda í því að myndum af þeim eða einhverjum upplýsingum um þau er dreift getur það haft afdrifaríkar afleiðingar og mér er mjög umhugað um að koma í veg fyrir slíkt.“
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Skárri staða í Álasundi Innlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Hættustigi aflýst og rýmingu aflétt á Ísafirði Skárri staða í Álasundi Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Sjá meira