Kennarar fá 7,3 prósenta launahækkun strax ingvar haraldsson skrifar 21. maí 2014 16:33 Frá samningafundi kennara og fulltrúa sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara Vísir/GVA
Heimildir Vísis herma að samkvæmt nýjum kjarasamningi kennara muni kennarar fá 7,3 prósenta launahækkun 1. júni ásamt frekari launahækkunum þegar líður á samningstímann. Samningurinn mun gilda út árið 2016. Kennurum verður einnig boðið að afsala sér aldursafslætti gegn um 9 prósenta launahækkun. Aldursafsláttur kennara felst í að 55 ára kennarar fá að fækka kennslustundum um ríflega eina klukkustund á viku. Sextugir kennarar geta svo fækkað kennslustundum um tæplega fimm stundir á viku. Í kjarasamningnum verður einnig kveðið á um breytingar á starfi kennarans. Ólafur Loftsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að stofnaður verði starfshópur sem fer yfir starf kennarans. „Starfshópurinn mun starfa til áramóta og fara yfir kennarastarfið. Vinnuframlag kennara verður skoðað ásamt því hvernig samstarf kennara gengur fyrir sig. Starfshópurinn mun einnig skoða kennarastarfið út frá bekkjarstærð, viðfangsefni, námsgetu nemenda og álagi á kennara.“ Ólafur er bjartsýnn á framhaldið. „Við bindum vonir við að nýr kjarasamningur muni auka sveigjanleika í skólastarfi.“ Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum Kennarasambands Íslands og sveitarfélaga á Íslandi. Hópurinn mun starfa fram til áramóta. Í febrúar 2015 munu kennarar kjósa um tillögur hópsins. Ólafur Loftsson segir að kjarasamningurinn verði birtur opinberlega á morgun. Í kjölfarið munu kennarar greiða atkvæði um kjarasamninginn.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Lítil flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Sjá meira