Enski boltinn

Gylfi að fá nýjan stjóra

Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino. vísir/getty
Það bendir flest til þess að Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino verði næsti stjóri Tottenham.

Spurs hefur verið í leit að stjóra síðan félagið rak Tim Sherwood frá félaginu. Nafn Pochettino kom snemma upp í umræðunni.

Hann hefur verið stjóri Southampton síðan í janúar í fyrra og hefur gert magnaða hluti með liðið þar.

Viðræður hans og Spurs eru langt komnar eftir því sem enskir fjölmiðlar segja. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Southampton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×