Geðhjálp hlaut Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. maí 2014 12:49 Við afhendingu verðlaunanna í dag.
Landsamtökin Geðhjálp hlutu Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í dag. Hannari Jónssyni, formanni stjórnar Geðhjálpar, var afhent verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar. Jón Gnarr borgarstjóri afhenti verðlaunin. Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Jón Gnarr sagði við afhendingu mannréttindaverðlaunanna að Geðhjálp væru vel að viðurkenningunni komin. „Reykjavíkurborg vill leggja sitt lóð á vogarskálarnir svo samtökin geti unnið að því göfuga markmiði að bæta hag geðfatlaðra til virðingar og virkni í fjölbreyttu samfélagi þar sem allir geta og eiga að njóta sín“. Verðlaunin voru skúlptúr eða manneskja úr bylgjupappa eftir Atla Viðar Engilbertsson listamann sem hefur oft tekið þátt í hátíðinni List án landamæra. Að lokinni afhendingu Mannréttindaverðlaunanna úthlutaði Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, styrkjum mannréttindaráðs til 11verkefna að upphæð samtals 5 milljónir króna. Landssamtökin Geðhjálp voru stofnuð fyrir 35 árum, þann 9. október 1979, og eru frjáls félagasamtök fólks með geðrænan vanda, aðstandenda þeirra, fagfólks og áhugafólks um bættan hag fólks með geðraskanir og geðfötlun. Samtökin sinna ráðgjafaþjónustu, bjóða upp á sjálfshjálparnámskeið og eru með viðburða- og fræðsludagskrá. Félagsmenn eru 540 talsins.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira