Hafa fundið heilan hest í endurvinnslugámi Jakob Bjarnar skrifar 16. maí 2014 13:17 Menn sem henda til að mynda óopnaðri mjólk í endurvinnslutunnu geta hæglega eyðilagt heilan bílfarm og þá þarf að urða hann. Úr safni
Sveinn Hannesson hjá Gámaþjónustunni segir um sannkallaða vitundarvakningu að ræða hvað varðar flokkun endurvinnanlegra umbúða en innan um eru svartir sauðir sem vinna verulegan skaða. Og ýmislegt er látið fara í endurvinnslugáma sem ekki á þar heima – svo sem hestshræ. Ef umbúðir koma óhreinar til endurvinnslufyrirtækja þýðir það einfaldlega að plastið hrapar í verði, verður í raun verðlaust. Þetta hefur í för með sér að slíkar umbúðir eru urðaðar en ekki endurunnar. Þeir sem hafa fyrir því að flokka ílát án þess að þrífa þau hefðu getað sparað sér flokkunina.Óhreinar umbúðir eru sorpÍ HR er starfandi teymið CleanMyRecycle sem vill auka vitund fólks á endurvinnslu og hvetja almenning til frekari þátttöku. Páll Halldór Schou Georgsson, ungur maður frá Egilsstöðum, er hugmyndafræðingurinn og hann segir, í viðtali við Austurfrétt, að flokkun í Háskólanum í Reykjavík sé til einskis því allt rusl úr skólanum sé einfaldlega urðað vegna þess hversu illa ílát þar eru þrifin. Sveinn Hannesson er framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar og hann segir þetta vissulega vandamál. „Ef ílátin eru óhrein þá eru þau ekki endurvinnsluefni,“ segir hann en áréttar að flestir sem flokka séu sér meðvitaðir um þetta. Að sögn Sveins er um að ræða umbúðir úr plasti, pappír og að einhverju leyti málum. „Það sem er endurvinnanlegt eru hreinar umbúðir. Ef þær eru ekki hreinar þá eru þær bara sorp. Það er bara þannig.“Hafa fundið hest í endurvinnslugámi Sveinn segir að í flestum tilfellum sé þetta í lagi. „En, svo eru þeir sem ekki vilja skilja þetta og þeir geta gert mikinn skaða. Ekki bara eru þeir að sóða út frá sér sjálfir, þeir að þeir geta skemmt heilan bílfarm. Ef menn hagar sér virkilega illa. Ef þú setur óopnar mjólkurfernur í endurvinnsluna til dæmis. Ég hef séð ýmislegt. Úti í Þýskalandi hef ég sá ég einu sinni heila bílvél í pappagámi, því miklu endurvinnslulandi. En, ef við beinum sjónum hingað heim... jahhh, ég ætla nú ekki að telja upp allt sem við höfum fundið en þar á meðal er hestur. Sumir eru bara ekki með og gera ýmsa einkennilega hluti þegar þeir halda að aðrir sjái ekki til.“Þessum fúlu fer fækkandiSveinn segir erfitt að tala um þetta því alltaf bóli á þeirri Grýlu að ekki borgi sig að flokka því þetta sé hvort sem er allt urðað. En, þó vissulega geti sóðarnir eyðilagt mikið eru flestir séu í lagi. „Það hefur orðið mikil og jákvæð vakning, við finnum nú heldur betur fyrir því. Við skynjum mikla jákvæðni og gerbreytt viðhorf síðustu tíu árin. Það langar flesta til að verð umhverfisvænir. Það eru alltaf einhverjir sem eru fúlir að eðlisfari og vilja ekki vera með,“ segir Sveinn. En þeim fer sem betur fer snarfækkandi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira