Innlent

Tæplega helmingur landsmanna fylgjandi náttúrupassa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Pjetur
MMR kannaði á dögunum afstöðu almennings til þess að ferðamönnum, íslenskum sem erlendum, verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 47,2% vera fylgjandi því að ferðamönnum verði gert að kaupa náttúrupassa til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi og 35,2% sögðust vera andvíg.

960 manns tóku þátt í könnuninni.

Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú að ferðamönnum (íslenskum sem erlendum) verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi?"

Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), bæði og, frekar fylgjandi, mjög fylgjandi og veit ekki/vil ekki svara.

Samtals tóku 98,1% afstöðu til spurningarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×