Framhaldsskólakennarar til í aðgerðir nái þeir ekki fram verulegum kjarabótum Heimir Már Pétursson skrifar 8. janúar 2014 13:26 Langlundargeð framhaldsskólakennara er á þrotum. Segjast haga dregist aftur úr sambærilegum stéttum hjá ríkinu.
Tugir félaga opinberra starfsmanna eru með lausa kjarasamninga og vilja ná fram meiri launahækkunum en samið var um á almennum vinnumarkaði á dögunum. Harka gæti hlaupið í samninga framhaldsskólakennara sem telja sig hafa dregist aftur úr hjá hinu opinbera. Stærsti hluti verkalýðsfélaga var aðili að nýgerðum skammtíma kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem gerðir voru fyrir áramótin og fólu í sér 2,8 prósenta almenna launahækkun frá 1. janúar auk tæplega tíu þúsund króna hækkunar á laun undir 265 þúsund krónum. Þeir samningar hafa verið kallaðir aðfararsamningar og byggja á þeim sameiginlega skilningi að þegar verði hafinn undirbúningur að langtímasamningum næsta haust. Samningarnir eiga að tryggja að verðbólga fari ekki á skrið, en hún er nú þegar um 4 prósent þannig að launahækkun samninganna heldur ekki í við verðbólguna. Tuttugu og þrjú aðildarfélög Bandalags háskólamanna, BHM og 25 aðildarfélög BSRB reyna nú samninga við ríki og borg og ljóst að hjá þessum félögum vilja menn meiri kjarabætur en samið var um á almenna markaðnum. Elínbjörg Jónsdóttir formaður BSRB segir aðildarfélögin semja hvert fyrir sig. „Umræðan hjá okkur hefur verið sú að gera kjarasamning til stutts tíma einfaldlega til að reyna að átta okkur betur á því umhverfi sem við erum að fara inn í,“ segir Elínbjörg.Ertu bjartsýn á að samningar ykkar félagsmanna muni takast á næstu vikum? „Ég er svona hæfilega bjartsýn með það,“ segir Elínbjörg. Róðurinn gæti hins vegar orðið þungur hjá framhaldsskólakennurum. Viðmælendur fréttastofu innan Kennarasambandsins segja kennara orðna langþreytta á sínum kjörum og þeir telji að þeir hafi orðið eftir í launaskriði hjá hinu opinbera miðað við sambærilegar stéttir. Framhaldsskólakennarar telji sig hafa sýnt mikið langlundargeð á undanförnum árum og ekki verði beðið lengur með að leiðrétta þeirra kjör og þar á bæ tala menn jafnvel um að farið verði í verkfall, verði ekki komið til móts við kröfur þeirra.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira