Gagnrýna harðlega frummat á umhverfisáhrifum Thorsil Sveinn Arnarsson skrifar 19. desember 2014 09:30 Hörð gagnrýni er sett fram á frummatsskýrslu um umhverfismat kísilvers Thorsil í Helguvík. Fréttablaðið/GVA
Atlantic Green Chemicals og United Silicon mótmæla harðlega frummatsskýrslu Mannvits um umhverfismat af verksmiðju Thorsil í Helguvík. Vilja fyrirtækin að Skipulagsstofnun taki frummatsskýrsluna ekki til efnislegrar meðferðar. Forsvarsmenn Atlantic Green gera athugasemdir við það að frummatsskýrsla Thorsil geri ráð fyrir því að verksmiðja þeirra rísi á lóð sem hefur áður verið úthlutað til Atlantic Green. Vilja þeir að Skipulagsstofnun láti af efnislegri umfjöllun um frummatsskýrsluna. Magnús Garðarsson, umhverfisverkfræðingur og framkvæmdastjóri United Silicon, rannsakaði frummatsskýrslu Thorsil. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við skýrsluna í fimm liðum og rökstyður hvern og einn þátt í skýrslu sinni. Niðurstöður loftdreifingarútreikninga í frummatsskýrslunni væru vafasamar, sammögnunaráhrif mengunar ekki metin, innihald brennisteins í kolefnum vanmetið, villandi notkun á þynningarsvæði Norðuráls og að Thorsil ehf. hafi verið úthlutað sömu lóð og AGC. Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, gefur lítið fyrir þessa gagnrýni Magnúsar. „Í fyrsta lagi kemur þetta frá keppinaut á markaði. Ég ætla ekki að fullyrða hvort mat hans litast af því en hann er sannarlega keppinautur. Þarna er hann að vinna með ákveðið líkan af loftdreifingu. Við höfum verið í samvinnu við Mannvit og Vatnaskil sem hafa unnið með dreifingarlíkan um langa hríð við mörg stór verkefni. Það líkan hefur sannað sig að standast íslenskar kröfur og gefur rétta mynd,“ segir Hákon. Rut Kristinsdóttir, sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun, segir stofnunina nú vera að vinna í því að viða að sér gögnum um málið. „Við höfum rétt á því í lögum að leita til þriðja aðila til að gera úttekt fyrir okkur og það munum við gera. Þarna eru athugasemdir sem koma fram við frummatsskýrslu Thorsil sem við tökum alvarlega og munum leitast við að svara þeirri spurningu hvers vegna reikningarnir eru svona mismunandi,“ segir Rut. Mengun af verksmiðju Thorsil mun, að mati Garðars, hafa neikvæð og heilsuspillandi áhrif á loftgæði íbúa nærri Helguvík. Orðrétt segir í niðurstöðum Magnúsar að „…ef tekið hefði verið tillit til fyrrnefndra atriða í frummatsskýrslu Thorsil, mundi mat á umhverfisáhrifum gerbreytast, og líklega sýna að ekki væri skynsamlegt að staðsetja svona mikið af stóriðju á sama stað.“ Einnig segir: „Niðurstöður loftdreifingarútreikninga sýna án vafa, að samlegðar- og sammögnunaráhrif mengunarefna með annarri samsvarandi iðnaðarstarfsemi á svæðinu, munu valda því að styrkur mengunarefna mun fara yfir lögbundin viðmiðunarmörk og þannig valda óásættanlegum umhverfisáhrifum sem hafa í för með sér verulega neikvæð áhrif á heilsufar íbúa í norðurhluta Reykjanesbæjar.“
Tengdar fréttir Mannvit gerði frummatsskýrslu Thorsil 19. desember 2014 12:00 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira