Pilsner platað inn á útlendinga sem bjór sé Jakob Bjarnar skrifar 6. október 2014 13:27 Í Krambúðinni við Skólavörðustíg er ferðamönnum bent á að ekki tíðkist að selja áfengi í matvöruverslunum.
Í Krambúðinni við Skólavörðustíg hefur verið komið upp sérstöku skilti þar sem ferðamönnum er bent á að þar sé ekki til sölu bjór.Valdís Hrönn er verslunarstjóri í Krambúðinni við Skólavörðustíg og hún segir ástæðuna einfaldlega þá að margir verslunareigendur geri hreinlega út á þekkingarleysi og prangi pilsner inn á útlendinga sem bjór sé. Hún segir mjög algengt að fólk standi í þeirri meiningu að um áfengi sé að ræða, en í Krambúðina kemur straumur ferðamanna enda býður staðsetning búðarinnar uppá það.Kælir í verslun 10/11 í Austurstræti. Myndin var tekin í sumar.Vísir/KTD„Þau átta sig ekkert á þessu, enda óvön því að geta ekki keypt slíkan varning í matvöruverslunum. Jájá, það er verið að gera út á þennan misskilning víða. Hingað hefur fólk verið að koma og spyrja sérstaklega út í þetta. Einn sem kom í síðustu viku og spurði hvort við værum nokkuð með áfengi? Hann sagðist hafa keypt tvær kippur í matvöruverslun, hann drakk og drakk og fann ekkert á sér,“ segir Valdís Hrönn. Hún vill ekki standa í blekkingarleikjum gagnvart erlendum gestum. „Við viljum frekar segja fólki satt og teljum að það leiði til hollustu við okkur. Skapa traust. Að sjálfsögðu. Þó útlendingar séu hér aðeins í fáeina daga, þá eru meiri líkur á að þeir komi aftur til baka ef það er ekki verið að hafa þá að féþúfu eða ljúga í þá. Við viljum frekar fara þá leiðina en snuða fólk,“ segir Valdís Hrönn.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira