Framkvæmdir við nýjan Landspítala hefjast á þessu kjörtímabili Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 1. nóvember 2014 20:00
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram á Grand Hótel í dag. Fundurinn hófst á ræðu Bjarna Benediktssonar og kom hann víða við. Hann sagði Ísland vera komið upp úr öldudal kreppunnar og að nú væri hafin sókn í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þá sagði hann gjaldeyrishöftin valda ómældu tjóni fyrir íslenskt atvinnulíf og að von væri á tíðindum um afnám þeirra. „Eftir því sem þessari vinnu vindur fram, þá get ég sagt ykkur það sem ég stend hér, að ég hef aldrei verið jafn sannfærður eins og í dag um að við munum ná markverðum árangri á næstu mánuðum í þessum málum,“ sagði Bjarni. Þá sagði Bjarni að ríkisstjórnin hefði forgangsraðað í þágu heilbrigðismála og myndi gera það áfram. „Það er til dæmis ljóst sem öllum varðar að húsnæði Landspítalans er að mörgu leyti úrelt. Það er ekki miðað við þarfir nútímalæknisþjónustu og húsnæðiskostnaðurinn beinlínis stendur í vegi ákveðinnar hagræðingar sem þarf að ná fram í rekstrinum og bættri þjónustu,” sagði Bjarni. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, sagði þetta um byggingu nýs Landspítala á aðalfundi Læknafélagsins í september: „Ég geri mér vonir um að tillögur um það hvernig best sé staðið að málum Landspítalans líti dagsins ljós á fyrri hluta komandi árs.” Kemur ríkisstjórnin til með að leggja fram áætlun um byggingu nýs Landspítala á næsta ári? „Ég skal ekki segja nákvæmlega hvenær okkar áætlanir muni birtast. En ég tel vel raunhæft, meðal annars í ljósi batnandi afkomu ríkissjóðs, við sjáum það í arði af fjármálastarfsemi í landinu, við sjáum það í álagningu lögaðila og einstaklinga. Þess vegna segi ég það hér í dag, að það er raunhæft og við ætlum að láta til skarar skríða, með að hefja framkvæmdir á þessu kjörtímabili,” sagði Bjarni.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sjá meira