Vilja ná eyrum Isavía Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. mars 2014 10:54 Frá fundinum í gærkvöldi. Mynd/Aðsend
Síðdegis í gær var haldinn sameiginlegur félagsfundur starfsmanna Isavía. Fundurinn var afar fjölmennur en þar var samankomið félagsfólk frá þremur félögum, SFR stéttarfélagi, FFR (Félag flugmálastarfsmanna ríkisins) og LSS (Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna). Í tilkynningu segir að mikil samstaða hafi verið meðal fundarmanna og ályktaði fundurinn m.a. á þá leið að fullum stuðningi var lýst yfir við sameiginlega samninganefnd félaganna. Einnig var þess var krafist að Isavía hlustaði á þær sanngjörnu kröfur sem settar hafa verið fram í kröfugerð félaganna, en álag hefur aukist gífurlega á starfsfólk undanfarin ár með aukningu flugfarþega. Ljóst er að starfsfólk Isavia er fyrir löngu orðið óþolinmótt eftir ásættanlegri lausn deilunnar, en kjarasamningsviðræðum hefur þegar vísað til sáttasemjara.Hér að neðan má sjá ályktun sem samþykkt var á fundinum Í þrjá mánuði hefur Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna átt í viðræðum við Isavia ohf og Samtök atvinnulífisins um gerð nýs kjarasamnings fyrir félagsmenn sína. Félögin hafa með sér samstarf og hafa skipað sameiginlega samninganefnd, enda lýsa kröfur félaganna sameiginlegum áhersluþáttum.Viðræður við Isavia og SA hafa gengið illa og viðsemjendur ekki komið af neinni alvöru að úrlausn þeirra mála sem félögin vilja ræða. Þar er um að ræða leiðréttingar og endurskipulagningu, auk lagfæringa í framkvæmd kjarasamnings. Nú er svo komið að kjaradeilunni hefur verið vísað til Ríkissáttasemjara. Félagsmenn vænta þess að undir verkstjórn hans komi Isavia og SA með einhverjar þær lausnir sem hægt verði að vinna með af fullri alvöru.Félagsmenn FFR, SFR og LSS krefjast þess að Isavia og SA komi að samningaborði með þann ásetning að semja um leiðréttingar og breytingar á skipulagi og vinnuumhverfi félagsmanna.Gríðarleg aukning flugfarþega hefur orðið á undanförnum árum. Starfsmenn Isavia hafa sýnt þeirri aukningu skilning og tekist á við aukið vinnuálag með þolinmæði og þrautseigju. Á síðustu árum hafa félagsmenn sýnt Isavia mikinn skilning vegna breytinga á rekstrarumhverfi. Ljóst er að Isavia sýnir gríðarlegan rekstrarhagnað og teljum við vel tímabært að fyrirtækið mæti kröfum starfsmanna um að vinnuframlag þeirra verði metið að verðleikum með bættum kjörum og starfsumhverfi.Sameiginlegir félagsfundir FFR, SFR og LSS lýsa yfir fullum stuðningi við sameiginlega samninganefnd félaganna. Fundirnir krefjast þess að samninganefndin leggi þunga áherslu á að ná samningsmarkmiðum félaganna. Það er kominn tími til að fyrirtækið hlusti á þær sanngjörnu kröfur sem settar hafa verið fram og sýni vilja til að leysa málin í sátt.
Mest lesið Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Innlent „Hvað er að lögreglunni?“ Innlent Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Innlent „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Erlent Fleiri fréttir Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Sjá meira