Tveir Devil's Choice meðlimir í haldi til viðbótar: "Við erum allir með hreina sakaskrá“ Hrund Þórsdóttir skrifar 24. október 2013 19:00
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur alls níu Norðmönnum verið vísað úr landi á síðustu tveimur dögum. Um er að ræða meðlimi mótorhjólaklúbbsins Devil's Choice, sem ætluðu að taka þátt í árlegum hátíðahöldum íslenska systurklúbbsins um helgina. Sjö til viðbótar voru teknir til skoðunar við komu þeirra til landsins í dag, þar af eru tveir enn í haldi og er líklegt að þeir verði sendir burt á morgun. Karl Þórðarson, talsmaður Devil's Choice, segir þetta fáránlegt. Af hverju? „Þetta eru menn sem eru ekki á sakaskrá og hafa verið að koma hingað síðastliðin átta ár án þess að hafa nokkuð af sér gert. Þeir hafa verið til fyrirmyndar, svo við skiljum ekki hvað vakir fyrir yfirvöldum með þessu,“ segir Karl. Við ákvörðun sína um að vísa mönnunum úr landi studdist Útlendingastofnun við hættumat greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, en Karl segir að þar sé ekki minnst orði á Devil's Choice. Hann segir starfsemina aðeins snúast um mótorhjól en játar því aðspurður að klúbburinn sé vinaklúbbur Hell's Angels, sem hefur verið bendlaður við skipulagða glæpastarfsemi. Má þá segja að þið leggið blessun ykkar yfir hana? „Hefur verið sannað að þeir stundi skipulagða glæpastarfsemi? Ég hef ekki vitað til þess,“ segir Karl. Eru þessi tengsl við Hell's Angels þá ekkert til trafala? „Þau eiga náttúrulega ekkert að vera það, vegna þess að klúbburinn Devils Choice hefur aldrei verið í glæpum, aldrei verið dæmdur fyrir glæpi og aldrei stundað neitt af því tagi. Við erum allir með hreina sakaskrá.“ Meðlimir klúbbsins ætla að kanna réttarstöðu sína eftir atburði síðustu daga. „Okkur finnst verulega á félögum okkar brotið,“ segir Karl. Hann segir að þegar hafi verið leitað til lögfræðings vegna þessa.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira