Langar að leggjast í bað 19. janúar 2013 06:00 Á Suðurpólnum Vilborg Arna Gissurardóttir setti upp íslenska fánann þegar hún náði suðurpólnum síðla kvölds á fimmtudag. Hún eyddi þar nóttinni í tjaldi og hélt svo í gær til Union Glacier, bækistöðvar suðurpólsfara. Eftir helgi tekur svo við ferðalagið heim. Mynd/Vilborg arna gissurardóttir
Framtíðin er óráðin eftir afrek í suðurpólsgöngu hjá Vilborgu Örnu Gissurardóttur. Hún leggur af stað heim frá Suðurskautslandinu eftir helgina. Af nútíma þægindum saknaði hún helst baðsins og hreinna fata. Þrátt fyrir að hafa kalið á lærum kveðst Vilborg Arna Gissurardóttir ótrúlega vel á sig komin að lokinni 1.140 kílómetra langri 60 daga göngu á suðurpólinn. Aðstæður voru oft erfiðar sökum vinda og brunagadds. „Mér tókst að hlífa kalsárunum og vissi hvað það var mikilvægt,“ sagði hún í gær eftir að hafa gist í tjaldi sínu eina nótt á suðurpólnum sjálfum. „Og mér líður vel, bæði líkamlega og á sálinni.“ Hún sagði um hefðbundin ferðalok að ræða, þar sem hún beið við annan mann eftir fari til Union Glacier, þar sem eru bækistöðvar flestra suðurpólsfara. Þar verður hún fram yfir helgi, fram að ferðalaginu aftur heim, en á þeirri leið byrjar hún á að fljúga til Punta Arena, syðst í Síle. „En í gærkvöldi fékk ég að skoða Pólstöðina og það var ótrúlega skemmtileg upplifun,“ sagði hún og kvað hafa komið á óvart hversu góða aðstöðu væri hægt að hafa á staðnum. Vilborg Arna sagði hins vegar blendnar tilfinningar hafa togast á í sér þegar nálgaðist áfangastað. „Auðvitað var rosaleg gleði og líka feginleiki yfir að vera að ná markmiðinu eftir alla þessa vinnu. En á sama tíma finnur maður líka fyrir eftirsjá, því nú er að baki stór hluti af lífi mínu.“ Og þótt stundum hafi á móti blásið þá segist Vilborg Arna aldrei hafa leitt að því hugann að gefast upp. „En auðvitað var þetta oft erfitt,“ sagði hún. Þráin og eftirvæntingin eftir takmarkinu hafi hins vegar verið erfiðleikum yfirsterkari. Þar sem hún beið í gær eftir fari í einhvern vísi af siðmenningu sagðist Vilborg Arna helst bíða eftir að komast í bað. „Það verður náttúrulega alveg ofboðslega gott að fara í bað og komast í hrein föt.“ Annarra nútímaþæginda, á borð við tölvu og síma og þess háttar, sagðist hún merkilega lítið hafa saknað. Að ferðalagi loknu segir Vilborg Arna svo í raun allt opið hjá sér. „Það má segja að fyrir þetta hafi maður fórnað vinnu og íbúð og öllu þess háttar. Þannig að það er allt opið bara og vonandi koma einhver skemmtileg verkefni upp í hendurnar á mér.“ Í tilkynningu kemur fram að áheitasöfnun Vilborgar Örnu í þágu Lífs, styrktarfélags Kvennadeildar Landspítalans, hafi tekið kipp á síðustu dögum. Safnast hafa 8,5 milljónir króna, helmingurinn síðustu fimm daga. Enn er hægt að leggja málefninu lið. Símanúmer söfnunarinnar er 908-1515 og dragast þá 1.500 krónur af reikningi þess sem hringir. Eins er hægt að skrá áheit á heimasíðu Vilborgar, www.lifsspor.is.
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira