Enginn friður án jafnréttis Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. desember 2013 10:00 Steinunn Björk Pieper ásamt tveimur hermönnum. Þau bera öll fjólubláan fána 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi.
Steinunn Björk Pieper bjó í 19 mánuði í gámi á stríðssvæði í Afganistan. Þar sinnti hún starfi jafnréttisfulltrúa á vegum Atlandshafsbandalagsins (NATO) en slík störf heyra til nýjunga hjá þessu gamla hernaðarbandalagi. Áður starfaði Steinunn á Mannréttindaskrifstofu Íslands. Þegar Steinunn kom til starfa í Kabúl bjuggu og störfuðu um tvö þúsund manns í búðunum, en álíka búðir á vegum Nató eru staðsettar víðsvegar í Afganistan. Starfinu sinnti hún í höfuðstöðvum ISAF (International Security Assistance Force) í höfuðborginni Kabúl. Starfið var á vegum friðargæslu utanríkisráðuneytisins og verkefnin fólust í að í vinna með afgönskum og alþjóðlegum stofnunum og samtökum, sem og NATO, að jafnréttismálum innan ISAF og í afgönsku samfélagi almennt, með áherslu á stöðu kvenna í afganska hernum og lögreglu.Bjó í gámi Hvernig voru aðstæðurnar sem þú bjóst við í búðunum í Kabúl? „Flestir sem voru á svæðinu bjuggu í gámum, hvort sem þeir voru borgarlegir starfsmenn eða óbreyttir hermenn, og tvær til þrjár manneskjur í hverjum gámi. Það var hægt að búa til ágætis blokkir úr gámunum með því að stafla þeim upp. Gallinn var að það var erfitt að þrífa þá. Reyndar bjuggu þeir sem hærra voru settir við þann munað að þurfa ekki að deila gámi,“ segir Steinunn og bætir við að nú sé reyndar farið að reisa blokkir á svæðinu eftir tíu ára veru Nató þar. „Í upphafi bjóst enginn við að Nató yrði jafn lengi á svæðinu og raunin varð og því voru settir upp gámar, sem svo fjölgaði smám saman.”Hvernig var lífið í búðunum og hvernig fólk býr á svona stað? „Meirihluti starfsfólksins í búðunum voru hermenn og þarf ekki að koma á óvart að karlmenn voru mun fleiri en konur,” segir Steinunn. Hún tekur fram að svæðið sé ekki stórt og því hafi myndast þar stemning áþekk þeirri sem myndast í þorpum. “Maður kannaðist nánast við alla. Það var mikill samgangur vinnunnar vegna og þetta var mjög lifandi. Þarna var mötuneyti, þar sem allir borða saman en svo voru líka veitingastaðir þarna þar sem hægt var að kaupa góðar pitsur og afganska rétti. Þarna var hægt að fara í líkamsrækt og bíó og sækja bingó og salsakvöld. Einnig voru kaffihús og verslanir, svokallaðar „Px“, þar sem allar helstu nauðsynjar fengust,” segir Steinunn og rifjar upppp að úrvalið hafi yfirleitt verið einkennilegt. Eina vikuna hafi verslanirnar til að mynda verið fullar af súkkulaði og rakspírum, en næstu viku hafi áherslan verið á sjampó og úrval af hermannaskóm. „Fólk er samt innilokað. Maður kemst nánast ekkert út fyrir svæðið nema starfsins vegna, en þá var farið í fylgd vopnaðra bílstjóra. Þetta er svolítið eins og að búa í vinnunni sinni og vera alltaf þar. Maður hittir alltaf sama fólkið,” segir Steinunn.Konurnar komast ekki á klósettið Spurð um störf jafnréttisfulltrúa hjá Nató segir Steinunn að starfið sé fremur nýtt. Enginn jafnréttisfulltrúi hafi verið á vegum bandalagsins fyrr en árið 2009, en bandalagið hefur verið þar frá árinu 2003. Hún segir enn fremur að miklar framfarir hafi orðið í þessum málaflokki innan NATO sem spennandi hafi verið að taka þátt í. Starf jafnréttisfulltrúa gengur út á að vinna að jafnréttismálum innan hersins og í afgönsku samfélagi, en einnig innan afganska hersins og lögreglunnar. Í Afganistan fylgdist Steinunn með framvindu mála sem varða konur, frið og öryggi á þeim sviðum sem tengjast störfum Nató. „Við veittum hershöfðingjum Nató og afgönskum ráðamönnum ráðgjöf um hvað betur mætti fara, stefnumótun og fleira. Allt var þetta unnið í samvinnu, til dæmis við stofnanir Sameinuðu þjóðanna, aðrar alþjóðastofnanir, sendiráð og þróunarsamvinnustofnanir hinna ýmsu þjóða, frjáls félagasamtök og fleiri,” útskýrir Steinunn.Er mikilvægt að vinna að jafnréttismálum á svona stöðum? „Jafnréttismál eru afar mikilvæg þegar kemur að því að byggja upp stríðshrjáð samfélög. Það er ekki hægt að koma á varanlegum friði án þess að taka jafnrétti með í reikninginn. Það hefur lítið upp á sig til lengri tíma að laga vegi, byggja upp menntastofnanir, reisa hús og setja reglur til þess að koma í veg fyrir spillingu ef það gleymist alveg að tala við helming þjóðarinnar, konurnar,“ segir Steinunn. Hún bendir á að karlar og konur í Afganistan hafi ekki endilega sömu hugmyndir um hvað þurfi að gera til stuðla að friði, enda sé mikill munur á hlutverkum kynjanna og þau sinni oft ólíkum störfum. Samfélagshefðir hvetji ekki til mikils umgangs milli kynjanna. „Þó að það sé vilji til að breyta þessu þykir mörgum það óþægileg tilhugsun og hugmyndin um að kynin deili til dæmis vinnuaðstöðu getur vakið reiði sumra karla. Þetta getur skapað vandræði. Sem dæmi getur það verið erfiðleikum bundið fyrir konur að vinna á hefðbundnum karlavinnustöðum, bara vegna þess að enn hefur ekki verið útbúin sér salernisaðstaða fyrir þær. Konurnar hvorki vilja né geta notað sama salerni og karlarnir og komast því kannski ekkert á klósettið allan daginn,” segir Steinunn. Hún tekur fram að konur og karlar hafi ekki endilega sömu sýn á hlutina. „Svo dæmi sé tekið utan af landsbyggðinni, þá er líklegt að konur og karlar svari ólíkt þegar fólk er spurt hvar ætti að fjarlægja jarðsprengjur úr jarðvegi. Það helgast einmitt af því að algengt er að kynin verji tíma sínum á mismunandi stöðum og forgangsraði atriðum sem hafa með öryggi að gera á mismunandi hátt. Þar sem hefðir eru svona gamlar og rótgrónar er ekki heillavænlegt að streitast um of á móti til að byrja með,” segir Steinunn og bætir við að betra sé að haga málum þannig að bæði karlar og konur geti tjáð sig og haft áhrif á gang mála.Alltaf í viðbragðsstöðu Steinunn segir að búðirnar sem hún bjó í séu á svokölluðu grænu svæði, þar sem öryggi er meira en annars staðar. Til að mynda sé bandaríska sendiráðið í Afganistan á græna svæðinu. Þegar hún var nýkomin til Afganistan hafi verið gerð árás í nágrenni búðanna. „Þá var gripið til ráðstafana og öllum skipað að halda sig inni,” segir Steinunn. Engan sakaði á kampinum í þessari árás, en sprengju var kastað yfir vegg við búðir Steinunnar. Hún segir að þrátt fyrir þetta hafi hún upplifað öryggi innan svæðisins. „Fólkið sem vinnur við þessar aðstæður er ýmsu vant. Harka færist í átök á sumrin og haustin. Þá, eins og raunar alltaf, eru menn í viðbragðsstöðu.” Steinunn bendir á að fólk sem býr fyrir utan varnarsvæði búi sífellt við hættu af árásum talíbana. „Þetta er þeirra veruleiki sem fólk tekur með miklu jafnaðargeði, en ég fann ekki eins fyrir því þar sem ég var varin innan svæðisins.” Lengi þráð að kynnast Afganistan Eftir heimkomuna í mars á þessu ári snéri Steinunn aftur til fyrri starfa sinna á Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hún segir aðspurð að hún geti vel hugsað sér að halda aftur til svipaðra starfa og þeirra í Afganistan. „Þetta var frábær reynsla, ég hafði lengi þráð að kynnast Afganistan frá öðrum sjónarhóli en úr bókum og samtölum við vini. þó svo að kynni mín við landið hafi vissulega verið takmörkunum háð kynntist ég fullt af Afgönum og öðru fólki víða að úr heiminum, með sín ólíku áhugamál og siði og venjur, og slíkt gefur gefur lífinu gildi.”
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira