Vinstri Grænir segja fjárlagavinnu í uppnámi Samúel Karl Ólason skrifar 22. nóvember 2013 07:00 Bjarkey Gunnarsdóttir
Tveir fundir fjárlaganefndar féllu niður í vikunni, þrátt fyrir að vinna við breytingartillögur við fjárlagafrumvarp sé ekki hafin. Bjarkey Gunnarsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, alþingismenn Vinstri grænna, hafa ítrekað kallað eftir svörum á Alþingi um stöðu fjárlagavinnunnar í vikunni og hvort til standi að leggja fram frumvarp til fjáraukalaga. Það að vinna í fjárlaganefnd sé ekki hafin bendir, samkvæmt tilkynningu frá Svandísi Svavarsdóttur, þingflokksformanni VG, til þess að fresta þurfi annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið. Fjárlögin munu fara til afgreiðslu Alþingis áður en fjáraukalögin verða kláruð. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á miðvikudaginn að það væri óheppilegt í sjálfu sér, en þó væru dæmi um slíkt í fortíðinni. Bjarkey Gunnarsdóttir þingmaður VG sagðist vera ósammála því að fjáraukafrumvarpið megi bíða. Að slíkt hefði ekki gerst í ein þrjátíu ár, utan 2008. Fréttatilkynninguna í heild sinni er hægt að lesa hér að neðan: Ótúrskýrðar tafir á fjárlagavinnu Bjarkey Gunnarsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon þingmenn Vinstri grænna hafa í vikunni ítrekað kallað eftir svörum á Alþingi frá fulltrúum ríkisstjórnarinnar um stöðu fjárlagavinnunnar og hvort til standi að leggja fram frumvarp til fjáraukalaga. Vinna við fjárlagafrumvarpið virðist vera í uppnámi og enn hafa ekki komið fram neinar breytingartillögur frá stjórnarmeirihlutanum. Þá stefnir í að seinangangur fjáramála- og efnahagsráðherra við gerð fjáraukalagafrumvarps muni tefja fjárlagavinnuna enn frekar. Algjör óvissa í fjárlagavinnu Í umræðum um störf þingsins á þriðjudag kom fram að engin vinna er hafin í fjárlaganefnd við breytingartillögur við fjáralagfrumvarp og því bendi allt til þess að fresta verði annarri umræðu um það. Einnig kom fram að þrátt fyrir þetta hafi tveir fundir fjárlaganefndar fallið niður í vikunni. Bjarkey Gunnarsdóttir fulltrúi Vinstri grænna í fjárlaganefnd sagði að það væri fáheyrt að fundir féllu niður í fjárlaganefnd á þessum árstíma. „Við eigum að vera á bólakafi í að ræða málin og gera breytingar á frumvarpinu sem hefur verið boðað hér af miklum móð að verði stórt og mikið og hagræðingartillagnanna sjái stað,“ bætti hún við. Í fyrirspurnartíma á miðvikudag tók Bjarkey málið aftur upp og spurði Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hvenær von væri á breytingartillögum fyrir aðra umræðu fjárlaga. „En svo veltir maður því fyrir sér hverjir það eru sem ætla að leggja fram breytingartillögurnar við aðra umræðu,“ sagði Bjarkey og bætti við: „Fulltrúar meirihlutans í fjárlaganefnd vita ekki neitt um það hvenær það verður lagt fram eða hvað þar virðist eiga að vera. Að minnsta kosti var því svarað þannig í morgun, bæði af þingmanni og aðstoðarmanni ráðherra, sem þar sat, og formanni fjárlaganefndar, að þau vissu ekkert um það.“ Bjarni svaraði: „Það alveg skýrt að málið er á forræði þingsins og það er til meðferðar í nefndinni þannig að það verður á endanum nefndin, eftir atvikum meiri hluti hennar, sem mun mæla fyrir breytingum á fjárlagafrumvarpinu.“ Af þessum svörum er því ljóst fjárlagavinnan virðist vera í algjöru uppnámi. Auglýst eftir frumvarpi til fjáraukalaga Það er ekki aðeins fundarfall í fjárlaganefnd og skortur á tillögum frá stjórnarmeirihlutanum sem tefur fjárlagavinnuna. Steingrímur J. Sigfússon vakti athygli á því í fyrirspurnartíma á mánudag að frumvarp til fjáraukalaga væri ekki enn komið fram. „Ég sé engin dæmi um það í þingsögunni undanfarin ár að fjáraukalagafrumvarp hafi ekki verið komið fram tíu til fimmtán dögum eftir að fjárlagafrumvarpi er dreift og síðasta dagsetning sem ég finn er 15. október,“ sagði Steingrímur og spurði Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra: „Boðar það einhver tíðindi að fjáraukalagafrumvarpið er ekki komið fram?“ Bjarni svaraði því til að frumvarpið væri of seint á ferðinni en sagði að það væri dagaspursmál hvernær það kæmi fram. Bjarkey Gunnarsdóttir fylgdi málinu svo eftir í fyrirspurnartíma á miðvikudag. „Það er nánast ómögulegt að ætla sér að vinna eitthvað af viti í fjárlögunum ef þetta liggur ekki fyrir,“ sagði hún og spurði Bjarna hvort ekki þyrfti að fresta annarri umræðu fjárlaga, sem áætluð er 3. desember, og hversu mikið. Bjarni upplýsti að hann ætlaði sér að leggja fjáraukalagafrumvarpið fyrir ríkisstjórn á föstudag en það færi síðan til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. „Í sjálfu sér er óheppilegt að fjárlög séu tekin til afgreiðslu áður en fjáraukinn hefur verið kláraður en þess eru þó dæmi í fortíðinni að fjáraukalagafrumvarp hafi ekki verið afgreitt fyrr en eftir að fjárlög næsta árs voru kláruð,“ sagði Bjarni um hvort seinagangur hans við gerð fjáraukalagafrumvarpsins kæmi til með að seinka fjárlagavinnunni. Bjarkey sagði vera ósammála honum um að fjáraukalagafrumvarpið megi bíða. „Þetta hefur ekki gerst í held ég ein 30 ár, utan 2008, að fjáraukalögin hafi ekki verið afgreidd fyrr,“ sagði hún.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira