Innlent

Hafnarfjörður of stór fyrir innkomuvöktun

Samúel Karl Ólason skrifar
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að með uppsetningu innvöktunar í sveitarfélaginu yrði öryggi ekki aukið.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að með uppsetningu innvöktunar í sveitarfélaginu yrði öryggi ekki aukið. Mynd/Daníel
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur hafnað beiðni Securitas um kynningarfund um innkomuvöktun með myndavélum í sveitarfélaginu.

Securitas kynnti innkomuvöktunina, sem ætluð er til stuðnings löggæslu, á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í október.

Kerfið felst í myndavélum við bæjarmörk sveitarfélaga ásamt greiningarhugbúnaði sem skráir númer ökutækja sem ekið er fram hjá. Miðað er við að búnaðurinn sé settur upp á bæjarmörkum hjá smærri sveitarfélögum en á hverfamörkum hjá þeim stærri.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir bæjarráð telja að þjónustan henti Hafnarfirði ekki.

„Við erum með Reykjanesbrautina þvert í gegnum sveitarfélagið og við værum ekki að auka öryggi með því að setja upp myndavélar við innkomur að sveitarfélaginu. Við töldum að þetta hentaði ekki Hafnarfirði,“ segir bæjarstjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×