Svöðusár á íslenskri tónlistarmenningu Ólöf Skaftadóttir skrifar 21. júní 2013 07:00 Arnar Fells er einn þriggja eigenda faktorý Fréttablaðið/Anton „
Þetta leit ekki vel út um tíma, það átti að bola okkur út með fantabrögðum og lagaklækjum. Maður var bara í andlegu rusli. Faktorý var byggður upp með blóði, svita og tárum,“ segir Arnar Fells Gunnarsson, einn eiganda tónleika- og skemmtistaðarins Faktorý sem stendur á Hljómalindarreitnum. „Við áttum um 12 ár eftir af leigusamningnum þegar okkur var sagt upp og gefið að yfirgefa húsið í lok desember, þrátt fyrir skýr ákvæði um þriggja ára uppsagnarfrest í leigusamningnum. Reginn ehf túlkaði samninginn eftir eigin höfði og allt stefndi í dómsmál. Enginn venjulegur maður hefur áhuga á að kljást við ofurefli í dómssal,“ segir Arnar um Fasteignafélagið Reginn ehf, sem sá um sölu eignanna á reitnum fyrir hönd Landsbankans. „Þegar ég er spurður um samskipti okkar við Reginn hef ég ekkert að segja, því mér var kennt að hafi maður ekkert gott að segja sé best að þegja. Ég skora hinsvegar á fólk að kynna sér uppruna orðsins Reginn, en í Eddu er hann fégráðugur, svikull dvergur sem myrðir föður sinn í gróðaskyni,“ segir Arnar jafnframt en tekur fram að samskipti sín við nýjan eigenda reitsins, Pálmar Haraldsson, hafi verið góð. „Það var tónlist meðal annars sem kom Íslandi á kortið. Ég hef hitt marga útlendinga í gegnum tíðina sem skilja ekki hvernig við getum átt svona gróskumikið tónlistarlíf. Þess vegna er mikilvægt að hlúa vel að því. Þó Harpa sé fín í eðli sínu þá er hún ekki fyrir þann hluta tónlistarinnar sem skiptir einna mestu máli,“ bætir Arnar við. „Ég geri mér fulla grein fyrir því að það eru aðrir þættir sem spila inn í þann mikla fjölda ferðamanna sem sækja landið. En tónlist er án efa einn af stærri þáttunum. Túrismi er orðin ein af okkar helstu atvinnugreinum og hvað ætlum við að gera? Loka öllum stöðum þar sem grasrótin þrífst?,“ spyr Arnar. „Við tókum við sögufrægu húsi í niðurníðslu, gerðum það upp, og svo á að rífa það til að byggja enn eitt hótelið í hjarta miðbæjarins. Ég skil vel að miðbærinn þarfnist uppbyggingar, en ég get ekki séð að við séum á réttri leið. Það að missa Faktorý og Nasa á einu bretti er auðvitað svöðusár á íslenskri tónlistarmenningu, en við sáum vænlegri kost í að semja og ganga nokkuð sáttir frá þessu skemmtilega ævintýri, heldur en að taka blóðuga rimmu,“ segir Arnar að lokum og þakkar sýnda velvild síðastliðin þrjú ár.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Fleiri fréttir „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Sjá meira