Sara Björk: Hefði ekki verið ósanngjarnt að fá öll stigin Óskar Ófeigur Jónsson í Kalmar skrifar 12. júlí 2013 06:00 Sara Björk með viðurkenningu sína eftir leikinn í gær. fréttablaðið/óskaró
Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður íslenska liðsins, átti flottan leik í gær þegar íslensku stelpurnar náðu í sitt fyrsta stig á Evrópumóti í sögunni. „Við erum rosalega ánægðar með þetta stig en við vildum að sjálfsögðu frá öll þrjú stigin í leiknum. Við erum samt sáttar með eitt stig,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, besti maður vallarins í gær. Eftir brösóttan fyrri hálfleik óx íslenska liðinu ásmegin. „Við töluðum um það í hálfleiknum að við vorum með liðið of aftarlega og gerðum okkur þetta svolítið erfitt fyrir. Ég veit ekki hvort við vorum eitthvað stressaðar eða eitthvað. Við ákváðum að breyta þessu í seinni hálfleik og við gerðum það,“ sagði Sara Björk. „Við komum fullar af sjálfstrausti inn í seinni hálfleikinn, vorum nær hvorri annarri, unnum fleiri bolta og sköpuðum fleiri færi,“ sagði Sara Björk. „Mér fannst þær vera orðnar svolítið þreyttar í seinni hálfleik og þá keyrðum við einmitt á þær. Við hefðum getað skorað fleiri mörk. Ég er ekki að segja að ég sé óánægð með eitt stig en það hefði ekki verið ósanngjarnt að fá öll þrjú stigin,“ sagði Sara. „Ég er mjög ánægð með mína frammistöðu. Fyrir leikinn ákváðu allir leikmennirnir að gefa allt sitt og við gerðum það. Við sýndum það inni á vellinum og það var allt skilið eftir á vellinum í dag,“ sagði Sara. En hvað með verðlaun sem hún fékk í leikslok? „Það er heiður að fá þessi verðlaun en það sem skipti mig mestu máli var stigið sem við fengum,“ sagði Sara Björk. Hún fiskaði vítið sem skilaði jöfnunarmarkinu en var hún eitthvað að skipta sér af því hver tæki vítið? „Við vitum alveg að Margrét er vítaskyttan,“ sagði Sara, en var þetta víti? „Það held ég, enda sáum við þetta nokkrum sinnum í endursýningu,“ sagði Sara. „Ég var búin að vera meira í varnarhlutverki en mér líður vel þegar ég fæ að fara eitthvað framar á völlinn til að reyna að búa eitthvað fyrir liðið,“ sagði Sara um hlaupið sem skilaði vítinu en tvö önnur hlaup höfðu komið henni í skotfæri í teignum. „Þetta stig skiptir miklu máli það yrði frábært að ná í stig eða þrjú stig út úr næsta leik. Við erum komnar inn í mótið og það fylgir því mjög góð tilfinning að vera búnar að ná í fyrsta stigið á Evrópumóti,“ sagði Sara.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Dagskráin: Opna breska af stað, Vestri í Evrópu og Bestu mörkin Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ ESB-lönd vilja stöðva fjárstreymi til sambanda sem hleypa Rússum inn „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska Sjá meira