Sport

Sara Björk: Hefði ekki verið ósanngjarnt að fá öll stigin

Óskar Ófeigur Jónsson í Kalmar skrifar
Sara Björk með viðurkenningu sína eftir leikinn í gær.
Sara Björk með viðurkenningu sína eftir leikinn í gær. fréttablaðið/óskaró
Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður íslenska liðsins, átti flottan leik í gær þegar íslensku stelpurnar náðu í sitt fyrsta stig á Evrópumóti í sögunni.

„Við erum rosalega ánægðar með þetta stig en við vildum að sjálfsögðu frá öll þrjú stigin í leiknum. Við erum samt sáttar með eitt stig,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, besti maður vallarins í gær. Eftir brösóttan fyrri hálfleik óx íslenska liðinu ásmegin.

„Við töluðum um það í hálfleiknum að við vorum með liðið of aftarlega og gerðum okkur þetta svolítið erfitt fyrir. Ég veit ekki hvort við vorum eitthvað stressaðar eða eitthvað. Við ákváðum að breyta þessu í seinni hálfleik og við gerðum það,“ sagði Sara Björk.

„Við komum fullar af sjálfstrausti inn í seinni hálfleikinn, vorum nær hvorri annarri, unnum fleiri bolta og sköpuðum fleiri færi,“ sagði Sara Björk.

„Mér fannst þær vera orðnar svolítið þreyttar í seinni hálfleik og þá keyrðum við einmitt á þær. Við hefðum getað skorað fleiri mörk. Ég er ekki að segja að ég sé óánægð með eitt stig en það hefði ekki verið ósanngjarnt að fá öll þrjú stigin,“ sagði Sara.

„Ég er mjög ánægð með mína frammistöðu. Fyrir leikinn ákváðu allir leikmennirnir að gefa allt sitt og við gerðum það. Við sýndum það inni á vellinum og það var allt skilið eftir á vellinum í dag,“ sagði Sara. En hvað með verðlaun sem hún fékk í leikslok?

„Það er heiður að fá þessi verðlaun en það sem skipti mig mestu máli var stigið sem við fengum,“ sagði Sara Björk. Hún fiskaði vítið sem skilaði jöfnunarmarkinu en var hún eitthvað að skipta sér af því hver tæki vítið? „Við vitum alveg að Margrét er vítaskyttan,“ sagði Sara, en var þetta víti? „Það held ég, enda sáum við þetta nokkrum sinnum í endursýningu,“ sagði Sara.

„Ég var búin að vera meira í varnarhlutverki en mér líður vel þegar ég fæ að fara eitthvað framar á völlinn til að reyna að búa eitthvað fyrir liðið,“ sagði Sara um hlaupið sem skilaði vítinu en tvö önnur hlaup höfðu komið henni í skotfæri í teignum.

„Þetta stig skiptir miklu máli það yrði frábært að ná í stig eða þrjú stig út úr næsta leik. Við erum komnar inn í mótið og það fylgir því mjög góð tilfinning að vera búnar að ná í fyrsta stigið á Evrópumóti,“ sagði Sara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×