Stjórnmálamenn hugsa eins og Meistarar Ólöf Skaftadóttir skrifar 3. október 2013 12:51 Björt Ólafsdóttir í Bjartri Framtíð Mynd: Hörður Sveinsson
Björt Ólafsdóttir tók til máls á Alþingi í gær við stefnuræðu forsætisráðherra fyrir hönd Bjartrar Framtíðar. „Í gær, á fyrsta degi nýs þings, hófst Meistaramánuðurinn svokallaði. Með honum er fólk hvatt til að setja sér markmið, til þess að verða besta útgáfan af sjálfu sér. Ríkisstjórnin hefur sett sér markmið við stjórnun landsins næstu fjögur árin. Þessi markmið endurspegla kannski best málamiðlun þessa tveggja flokka í ríkisstjórn, en þau stefna ekki að bestu útgáfunni af íslensku samfélagi. Þau eru ekki nægilega róttæk eða hugrökk,“ lagði Björt til málanna.En Meistaraáskorun dagsins í gær hljóðaði svo: Í tilefni þingsetningar skorum við á Alþingi að taka sér þátttakendur Meistaramánaðar til fyrirmyndar og einblína á lausnir og jákvæð samskipti í stað eilífs þras og leiðinda. Björt segir í samtali við Vísi að hún sé að taka léttan Meistaramánuð í ár. „Það eru allir að tala um þennan Meistaramánuð og mér finnst þetta flott framtak,“ segir Björt. „Ég er ekki formlega skráð á Facebook - því miður - en ég er með markmið. Ég er til að mynda í vinnu sem tekur dálítið yfir, þannig að ég er með markmið eins og að vera á staðnum, eins og sagt er, þegar ég er að gera annað eins og með syninum, þegar hann er í einhverjum meistaralegum pælingum,“ segir Björt jafnframt. „Ég er líka að taka upp markmið sem gamall vinnufélagi minn var með. Mér fannst það mjög stórt á sínum tíma og ég trúði honum ekki í fyrstu, en hann sagðist ætla að hreyfa sig á hverjum einasta degi í eitt ár,“ útskýrir Björt. Hún ætlar að taka þetta upp eftir honum og hreyfa sig á hverjum einasta degi í Meistaramánuði. „En stundum þarf að láta sér nægja, þegar það er brjálað að gera í þinginu, að taka alltaf tröppurnar upp á fimmtu hæð þar sem við erum með skrifstofur. Aðra daga get ég farið út að hlaupa. Það þarf að vera smá auðmýkt í skipulagningunni,“ segir Björt, létt í bragði.Hér að neðan má sjá ræðu Bjartar frá því í gær í heild sinni.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Fleiri fréttir Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Sjá meira