Matti Vill lendir í veðmálabrjálæði í Noregi Jakob Bjarnar skrifar 26. nóvember 2013 15:26
Brjánn Guðjónsson framkvæmdastjóri var að senda frá sér sína fyrstu bók sem heitir Meistarasögur. Þar er að finna stuttar gamansögur sem 55 íslenskir afreksmenn í íþróttum segja og tengjast ferli þeirra. „Þetta hefur blundað í mér í þó nokkurn tíma að skrifa bók. Má eiginlega segja að ég hafi tekið saman efni í bókina fyrir mömmu. Hún hafði enga trú á mér þegar ég sagði henni að mig langaði til að skrifa bók og þá hljóp í mig þrjóska,“ segir Brjánn sem er ánægður með sína fyrstu bók, nýkominni úr prentsmiðju. „Fyrir um tveimur árum fór ég að safna sögum í þetta hefti, Meistarasögur, en ég tengist íþróttahreyfingunni og leitaði ekki langt yfir skammt. Mér finnst sem dregin sé upp full einhæf mynd af íþróttamönnum í fremur einhæfum viðtölum sem birtast við þá í fjölmiðlum. Þeir vinna sem skora fleiri mörk-viðtölum. Ég veit að þeir hafa frá ýmsu að segja öðru en því,“ segir Brjánn.Brjánn Guðjónsson. Skrifaði bókina vegna orða móður sinnar.ValliKenndi Matta um tap sitt Flestar eru sögurnar í gamansömum dúr en auk þess er að finna þar sögur sem mega teljast fréttnæmar. Þannig segir til dæmis Matthías Vilhjálmsson fótboltakappi af atviki sem hann lenti í á síðasta ári í Noregi, en þar spilar hann fyrir IK Start frá Kristiansand. Um mitt síðasta sumar var mikill fréttaflutningur af veðmálabraski meðal leikmanna í norsku 1. deildinni. Norska knattspyrnusambandið komst að því að leikmaður hafði sett 2,3 milljónir króna á að sitt lið myndi tapa í leik sem snérist um uppgjör í deildinni. Matthías tengist ekki málinu en lenti óbeint í því. Hann segir svo frá í Meistarasögum: „Nokkrar vikur liðu, þessi mál voru ofarlega á baugi en tímabilið hélt áfram hjá mér. Ég var að undirbúa mig fyrir einn útileikinn, allt var eins og það átti að vera og svo hófst leikurinn. En þegar leið aðeins á fyrri hálfeik fór ég að taka eftir því að einn varnarmaðurinn hjá hinu liðinu var óhemju harður í horn að taka og fór ítrekað aftan í mig. Ég var orðinn frekar pirraður á þessu og það endað með því að ég spurði hann bara hreint út hvað honum gengi til? Þá sagðist hann ekki búinn að fyrirgefa mér það að hafa fengið á mig vítaspyrnu í síðasta leik. Þannig var að ég fékk boltann í höndina í varnarvegg á síðustu mínútu leiksins, hitt liðið fékk víti og skoraði. Leikurinn fór jafntefli eftir þetta klúður hjá mér. Hann sagðist hafa lagt 100.000 Nok (sömu fjárhæð og átti að veðja á leikinn sem frestað fyrir um sumarið) á IK Start og því fé hefði hann tapað vegna þessa vítis sem ég fékk á mig. Ég hugsaði náttúrlega bara að hann væri eitthvað sjúkur og trúði þessu varla. Sem betur fer unnum við leikinn örugglega en þetta var býsna sérkennileg reynsla."
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Sjá meira