Innlent

Selt sérstaklega á urriðann

Jakob Bjarnar skrifar
Hann er einstakur og vænn ísaldarurriðinn í Þingvallavatni, en næsta sumar verða seld veiðileyfi sérstaklega á hann.
Hann er einstakur og vænn ísaldarurriðinn í Þingvallavatni, en næsta sumar verða seld veiðileyfi sérstaklega á hann.
Tvennskonar veiðileyfi verða seld í Þingvallavatn næsta sumar, hefðbundin í Þjóðgarðinum og svo á urriðasvæði vatnsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veiðikortinu í gær en það er veiðivefurinn veiða.is sem fjallar um málið. Þar segir meðal annars að sérstaklega verði seld veiðileyfi á svæði sem kallast Þingvallavatn II fyrir landi Ölfusvatns, en það svæði var eitt helsta urriðasvæði vatnsins síðastliðið sumar og svo Þorsteinsvík. Leigutaki svæðisins er ION Hótel sem mun sérstaklega miða við að selja erlendum ferðamönnum veiðileyfin.

Áskilið er að öllum urriða verði sleppt og eingöngu verði veitt á flugu. Veiðin er takmörkuð við 6 stangir. Verð verður talsvert hærra en almennt í vatnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×