Lars er jákvæður fyrir því að halda áfram Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. október 2013 07:00 Lagerbäck tók við landsliðinu fyrir um tveimur árum og árangurinn hefur verið allt annar síðan hann tók við. fréttablaðið/vilhelm
Undankeppni HM 2014 lýkur eftir slétta viku en þá spilar Ísland við Noreg ytra. Á föstudaginn spilar íslenska landsliðið við Kýpur á heimavelli. Ef vel gengur í þessum leikjum tryggir Ísland sér sæti í umspili fyrir HM, annars er ballið búið í bili. Svíinn Lars Lagerbäck hefur komið mjög sterkur inn í starf landsliðsþjálfara og margt breyst til batnaðar síðan hann tók við. Samningur hans rennur aftur á móti út eftir undankeppnina og menn spyrja eðlilega hvort Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, ætli sér ekki að framlengja við Svíann.Talað saman síðan í vor „Við erum að tala saman um framtíðina. Höfum verið að gera það síðan í vor. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, léttur. „Ég er bjartsýnn á að Lars haldi áfram en það er ekki búið að ganga frá neinu. Við munum klára þessa tvo leiki sem eru eftir áður en við setjumst niður með formlegum hætti. Við höfum aftur á móti spjallað saman á þeim nótum að hann haldi áfram og viðbrögð hans hafa verið jákvæð.“ Lagerbäck er orðinn 65 ára gamall en er við fína heilsu. Er hann tók við íslenska landsliðinu stóð ekki til að staldra mjög lengi við. „Þegar hann kom til starfa áttu þetta að vera lokaárin í þjálfuninni hjá honum. Hann þarf auðvitað að huga að sínum málum en mér finnst hann vera jákvæður og þess vegna er ég bjartsýnn á að hann haldi áfram. Hann er ánægður í starfi og með strákana og liðið. Það hjálpar vissulega til og ekki skemmir fyrir að það hefur einnig gengið vel.“Mun ræða fyrst við KSÍ Árangur íslenska landsliðsins hefur að sama skapi gert það að verkum að nafn Svíans hefur verið nefnt í sambandi við önnur landslið. Árangurinn hefur komið honum aftur á kortið og ekkert ólíklegt að KSÍ þurfi að keppa um þjónustu hans. „Við erum alveg rólegir yfir því enda ætlar hann að ræða fyrst við okkur,“ segir Geir. Sér hann fram á einhverjar hindranir eins og kröfu um hærri laun í viðræðunum við Svíann? „Ég sé engar sérstakar hindranir í því sambandi. Hann hefur aðallega verið að hugsa sinn gang eðlilega. Hvað hann vilji gera.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti Fleiri fréttir Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Sjá meira